Hafði betur eftir langt stapp við easyJet
Flugfélagið easyJet hefur fjarlægt stálplötur úr mæligrindum fyrir handfarangur á Gatwick-flugvelli eftir að íbúi á Akureyri kærði félagið vegna aukagjalds sem hann var krafinn um vegna handfarangurs.
Aðalsteinn Svan Hjelm birti færslu á Facebook þar sem hann segir frá málavöxtum. Hann fór í fjölskylduferð til Grikklands í maí þegar starfsfólk við brottfararhlið á Gatwick flugvelli bað hann um að setja handfarangurstöskur sínar í mæligrind til að sannreyna að þær uppfylltu stærðarkröfur easyJet.
Taskan passaði allt í einu ekki í mæligrindina
Samkvæmt Aðalsteini hafði hann ferðast ítrekað með sömu Samsonite-töskuna, sem er merkt „easyJet Verified“, án vandkvæða. Í þetta skiptið passaði taskan hins vegar ekki í grindina og þurfti að greiða um 16 þúsund krónur í aukagjald fyrir tvær töskur. Aðalsteinn lét ekki þar við sitja heldur hóf formlegt kvörtunarferli hjá easyJet. Þegar það skilaði ekki árangri fór málið fyrir Aviation ADR, sem er óháður úrskurðaraðili með aðsetur í Bretlandi. Á öllum stigum var kröfum hans hafnað og engin sjálfstæð skoðun fór fram á mæligrindinni sem deilan snerist um.
Þegar Aðalsteinn fór að skoða málið betur komst hann að því að fleiri farþegar höfðu greint frá svipaðri reynslu. Breska neytendablaðið Which? hefur meðal annars fjallað um kvartanir frá farþegum sem telja sig hafa verið rukkaða að ósekju fyrir handfarangur sem áður hafði staðist stærðarkröfur. Þar hefur einnig komið fram að easyJet hafi falið verktökum eftirlit með handfarangri og að greitt sé fyrir hverja tösku sem metin er of stór.

Á myndinni hér fyrir ofan sést hvernig taskan passar í mæligrind easyJet en á myndinni fyrir neðan er búið að setja stálplötur á grindina svo taskan passar ekki. Myndir: Facebook síða Aðalsteins.

Stálplöturnar hafa verið fjarlægðar
Þegar Aviation ADR komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri tilefni til frekari meðferðar ákvað Aðalsteinn að senda tölvupóst beint á nokkra af æðstu stjórnendum easyJet. Í kjölfarið hafði flugfélagið samband við hann og upplýsti að rannsókn hefði leitt til þess að ákveðið hefði verið að fjarlægja stálplöturnar úr öllum mæligrindum á Gatwick-flugvelli. Jafnframt bauð easyJet honum fulla endurgreiðslu á aukagjaldinu og baðst afsökunar á meðferð málsins.
Aðalsteinn hefur jafnframt óskað eftir svörum um hvort easyJet hyggist bæta öðrum farþegum sem kunna að hafa greitt sambærileg gjöld á meðan umræddar stálplötur voru í notkun. Enn hefur félagið ekki svarað þeirri fyrirspurn. Í færslu sinni á Facebook segir Aðalsteinn niðurstöðuna vera mikilvægan áfanga en tekur fram að hann telji málinu ekki lokið. Hann hyggst senda öll gögn málsins til breskra neytendasamtaka og fjölmiðla til frekari umfjöllunar. Hér má lesa Facebook-færslu Aðalsteins í heild sinni.