Fara í efni
Millilandaflug frá Akureyri

35% fjölgun farþega í millilandaflugi milli ára

Mynd: Hörður Geirsson

Árið 2024 fóru um 33.000 farþegar í millilandaflugi um Akureyrarflugvöll en um 44.500 á nýliðinu ári, sem er um 35% aukning. Þetta kemur fram í grein Ásthildar Sturludóttur bæjarstjóra á Akureyri sem birtist í dag. „Með sama framhaldi má gera ráð fyrir að farþegar í millilandaflugi um völlinn nálgist 150.000 árið 2030 og það munar um minna!“ skrifar bæjarstjórinn.

Ásthildur nefnir í greininni að nýtt flughlað hafi verið tekið í notkun og sömuleiðis stærri og betri flugstöð. Þær endurbætur ásamt greiðslum úr Flugþróunarsjóði hafi orðið til þess að millilandaflug um Akureyrarflugvöll hafi tekið heljarstökk fram á við.

Bæjarstjórinn segir að millilandaflug um Akureyrarflugvöll sé að verða lykilatriði í uppbyggingu atvinnulífs á Norður- og Austurlandi, fjárfestar horfi til þess með velþóknun að beinar samgöngur séu tryggðar við önnur Evrópulönd „og önnur gátt inn í landið gerir okkur kleift að jafna álagið á helstu ferðamannastaði. Þannig fær ferðaþjónustan byr undir báða vængi.“

Flugþróunarsjóður afar mikilvægur

Ásthildur kveðst vonast til þess að þau flugfélög sem nú hafa áætlunarflug til Akureyrar yfir vetrartímann muni festa sig enn frekar í sessi á komandi misserum og hefja beint flug allan ársins hring, það taki hins vegar sinn tíma að vinna markaðinn svo flugið verði algjörlega sjálfbært, og áframhaldandi og helst aukinn stuðningur úr Flugþróunarsjóði sé afar mikilvægur til þess að svo megi verða. „Ánægjulegt var að sjá að framlög í sjóðinn verða aukin um 100 milljónir á þessu ári en betur má ef duga skal. Tryggja þarf framlög ríkisins í sjóðinn á komandi árum og að þau verði ekki skorin niður að geðþótta með skömmum fyrirvara.“

Grein Ásthildar Sturludóttur