Fara í efni
Menntaskólinn á Akureyri

„Stelpurnar okkar“ í undanúrslit bikarsins?

Leikmenn Þórs/KA fagna einu sex markanna í sigrinum á KR í síðustu umferð bikarkeppninnar. Mynd: Ármann Hinrik

Þór/KA fær FH í heimsókn í dag í átta liða úrslitum bikarkeppni kvenna í knattspyrnu, Mjólkurbikarnum. Leikurinn hefst kl. 17:30 í Boganum og þar er allt eða ekkert í boði eins og jafnan þegar bikarkeppnin er annars vegar; sigurliðið fer í undanúrslit, en tapliðið er úr leik. Þór/KA sigraði KR 6:0 í síðustu umferð bikarkeppninnar.

Þór/KA og FH hafa mæst einu sinni í sumar, FH sigraði 3:0 í viðureign þeirra í Bestu deildinni í Boganum í byrjun maí þar sem gestirnir gerðu öll mörkum á rúmlega stundarfjórðungs kafla í fyrri hálfleik. „Stelpurnar okkar“ eiga því harma að hefna og ástæða til þess að hvetja sem flesta til að mæta í Bogann og styðja við bakið á þeim.

  • Mjólkurbikarkeppni kvenna í knattspyrnu
    Boginn kl. 17:30
    Þór/KA - FH

Lið ÍBV og Vals eru komin í undanúrslit bikarkeppni kvenna. ÍBV vann Tindastól á Sauðárkróki á mánudaginn og Valur lagði Þrótt í gærkvöldi. Átta liða úrslitunum lýkur í kvöld því auk leiksins í Boganum verður nágrannaslagur á Kópavogsvelli þar sem Breiðablik tekur á móti HK.

FH er sem stendur í þriðja sæti efstu deildar Íslandsmótsins,  Bestu deildarinnar, með 19 stig eins og Breiðablik en Þróttur er efstur með 22 stig. Þór/KA er næst fyrir neðan FH með 15 stig.