Menntaskólinn á Akureyri
														
Sjö sækja um starf skólameistara MA
											
									
		03.05.2022 kl. 17:03
		
							
				
			
			
		
											
											Brautskráning 2021. Gengið úr Íþróttahöllinni til myndatöku á lóð skólans. Jón Már Héðinsson, skólameistari, og Sigurlaug Anna Gunnarsdóttir, aðstoðarskólameistari, í broddi fylkingar. Sigurlaug er einn umsækjenda um starf skólameistara. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson
									Sjö sækja um embætti skólameistara Menntaskólans á Akureyri sem auglýst var til umsóknar á dögunum. Jón Már Héðinsson skólameistari lætur af störfum eftir brautskráningu 17. júní.
Þessi sóttu um:
- Alma Oddgeirsdóttir, brautastjóri í MA
 - Ásta Fönn Flosadóttir, skólastjóri
 - Karl Frímannsson, sviðsstjóri fræðslu- og lýðheilsusviðs hjá Akureyrarbæ
 - Kristín Elva Viðarsdóttir, skólasálfræðingur í MA
 - Ómar Örn Magnússon, doktorsnemi
 - Sigurlaug A. Gunnarsdóttir, aðstoðarskólameistari MA
 - Þuríður Helga Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri
 
Mennta- og barnamálaráðherra skipar í embættið til fimm ára í senn frá 1.ágúst að fenginni umsögn skólanefndar.