Hof, menningarhúsið okkar
„Menningarhúsið Hof var formlega opnað 28. ágúst 2010. HOF er menningarhús Norðlendinga og í raun allra landsmanna. Það skapar verðugan ramma um menningar- og tónlistarlíf með því að bjóða upp á fyrirmyndaraðstöðu fyrir fjölbreytilega viðburði á sviði tónlistar, leiklistar, danslistar og ráðstefnuhalds.“
Þessi texti er á heimasíðu Hofs.
Hof er metnaðarfullt átak til að þjóna menningu og listum með áherslu á tónlist og sviðslistir. Myndist af ýmsu tagi hefur einnig notið sín þarna ásamt fundum, ráðstefnum og samkomum af ýmsu tagi.
Í hönnun hússins var reynt að gera ráð fyrir öllu sem þurfa þótti og húsið var byggt samkvæmt þeirri hönnun, en með einni undantekningu: Loftræstingin var ekki fullkláruð, rakastillingu innilofts var „frestað“. Húsið var byggt á efnahagslega erfiðum tíma og frestunin var sparnaðaraðgerð. Fljótlega kom í ljós að þessum sparnaði fylgdi sá galli að rakastigið innanhúss var mjög óstöðugt, það fylgdi veðrinu utanhúss á þann veg að þegar kólnaði úti lækkaði rakastigið inni og í Akureyrskum frostaköflum skrælnaði allt innanhúss. Þurrkurinn skemmdi hljóðfæri og bitnaði á fólki.
Stjórnendur tónlistarskólans fóru fram á úrbætur en því var ekki sinnt og eftir einhverra ára nudd þagnaði málið alveg um tíma.
Snemma vors 2019 tók ég málið upp aftur hjá umhverfis- og mannvirkjaráði. Það gekk mjög treglega en eftir ítrekanir og eftirrekstur var rakastillingin sett inn á þriggja ára áætlun. Ég var ekki alveg sáttur en betra seint en aldrei. Svo leið tíminn og röðin kom loks að þessu.
Þá kom skellurinn: Frestað aftur, og svo aftur og aftur. Við vinnu framkvæmdaáætlunar fyrir árið 2026 var þessu frestað fram til 2027.
Mér finnst þetta endurspegla of mikið virðingarleysi gagnvart því sem verið að sinna í Hofi.
Kaupa sér frið með því að lofa þessu bráðum og standa svo ekki við neitt.
Nú spyr einhver; er þetta ekki bara of dýrt?
Kostar líklega svipað og uppsettur leikvallarskjár á „alvöru“ fótboltavelli með undirstöðu og tilheyrandi ...
Ólafur Kjartansson er núna áheyrnarfulltrúi VG í umhverfis- og mannvirkjaráði Akureyrarbæjar