Fara í efni
Menntaskólinn á Akureyri

Hákon Geir Snorrason bestur í upplestri

Keppendurnir fjórtán í úrslitum upplestrarkeppninnar. Aftari röð frá vinstri: Gísli Örn Ólafsson Naustaskóla, Friðrik Örn Ingólfsson Glerárskóla, Hákon Geir Snorrason Lundarskóla, Birgitta Ósk Orradóttir Brekkuskóla, Hrafnhildur Guðný Karlsdóttir Naustaskóla, og Karen Sólveig Pétursdóttir Giljaskóla. Fremri röð frá vinstri: Kristrún Erla Kristinsdóttir Oddeyrarskóla, Andrea Ósk Fjölnisdóttir Giljaskóla, Vilborg Harpa Jónsdóttir Síðuskóla, Aníta Þórunn Kristinsdóttir Síðuskóla, Kristrún Lára Lárusdóttir Oddeyrarskóla, Eyrún Erla Árnadóttir Lundarskóla, Reynir Gunnar Þórðarson Brekkuskóla og Starri Ólafur Sigurðsson Glerárskóla. Mynd: akureyri.is.

Lokahátíð upplestrarkeppninnar Upphátt – upplestrarkeppni grunnskólanna á Akureyri fór fram í Brekkuskóla sl. þriðjudag, þar sem nemendur í 7. bekk grunnskóla á Akureyri kepptu í upplestri. Hákon Geir Snorrason frá Lundarskóla varð hlutskarpastur í keppninni.

Áður en aðalkeppnin fór fram héldu skólarnir forkeppni þar sem tveir fulltrúar voru valdir til að taka þátt fyrir hönd hvers skóla. Í ár áttu sjö skólar fulltrúa í keppninni og því voru alls 14 nemendur sem stigu á svið.

Keppendur lásu fyrst brot úr bókinni Fjársjóðsleit í Granada eftir Ólaf Pál Jónsson og fluttu síðan ljóð eftir valda höfunda. Í síðasta hluta keppninnar lásu nemendur ljóð að eigin vali. Í dómnefnd sátu Eyrún Huld Haraldsdóttir, Hrund Hlöðversdóttir og Þorsteinn Gunnar Jónsson.

Allir þátttakendur stóðu sig með mikilli prýði og því var verkefni dómnefndar að velja sigurvegara ekki auðvelt. Að lokum varð niðurstaðan sú að Hákon Geir Snorrason úr Lundarskóla hreppti fyrsta sætið. Birgitta Ósk Orradóttir úr Brekkuskóla lenti í öðru sæti og Friðrik Örn Ingólfsson úr Glerárskóla varð í þriðja sæti.

Friðrik Örn Ingólfsson úr Glerárskóla, sem varð í þriðja sæti, sigurvegarinn Hákon Geir Snorrason úr Lundarskóla og Birgitta Ósk Orradóttir úr Brekkuskóla, sem varð í öðru sæti. Mynd: glerarskoli.is

Í aðdraganda keppninnar var einnig haldin samkeppni meðal 7. bekkja um besta veggspjaldið fyrir viðburðinn. Sigurvegarinn var Bryndís Matthíasdóttir úr 7. bekk Brekkuskóla og teikning hennar prýddi veggspjald keppninnar, auk viðurkenningarskjala og boðskorta.

Tónlist skipaði einnig mikilvægan sess á lokahátíðinni. Nemendur úr Tónlistarskólanum á Akureyri sáu um tónlistarflutning, þar sem bæði strengjasveit og unglingasöngdeild skólans komu fram.

Fyrir keppni sem þessa leggja bæði nemendur og kennarar talsverða vinnu við undirbúning en hann hefst ár hvert á Degi íslenskrar tungu, 16. nóvember. Sá hluti er kallaður ræktunarhluti þar sem nemendur í 7. bekk æfa upplestur og leggja sérstaka áherslu á skýran framburð, framkomu og túlkun texta.