Menntaskólinn á Akureyri
BSO húsið verður flutt seint í kvöld eða í nótt
14.06.2026 kl. 18:00
Myndir: Skapti Hallgrímsson
BSO húsið verður flutt úr miðbæ Akureyrar seint í kvöld eða í nótt, í lögreglufylgd, að Jólagarðinum í Eyjafjarðarsveit. Húsið var fyrr í dag híft upp á vagn sem vörubíll dregur á áfangastað og vakti sá gjörningur töluverða athygli enda um að ræða eitt allra umtalaðasta hús bæjarins undanfarna mánuði.
Akureyrarbær auglýsti húsið gefins, gegn því að það yrði flutt burt úr miðbænum eigi síðar en 15. júní þannig að síðustu forvöð til þess eru á morgun. Byggingin hefur hýst leigubílstjóra bæjarins til áratuga en fær eitthvert nýtt hlutverk á svæði Jólagarðsins þegar fram líða stundir.
