Fara í efni
Menntaskólinn á Akureyri

Baldvin fékk gullið í fyrstu götumílunni

Baldvin Þór kemur í mark í götumíluhlaupinu - fyrsti Íslandsmeistari í greininni. Mynd af Vísi: vecct/Aron Guan

Baldvin Þór Magnússon úr Ungmennafélagi Akureyrar sigraði á fyrsta Meistaramóti Íslands í götumílu sem fram fór í gærkvöldi. Hann er því fyrsti Íslandsmeistari karla í greininni. Hlaupið var á kvartmílubrautinni í Hafnarfirði við heldur erfiðar aðstæður, í hvassviðri og rigningu.

Baldvin Þór kom í mark á 4 mínútum og 21 sekúndu, 10 sekúndum á undan Jökli Bjarkasyni og Fjölni Brynjarssyni sem urðu jafnir í 2. og 3. sæti. Andrea Kolbeinsdóttir sigraði í kvennaflokki á 4 mínútum og 59 sekúndum.

„Götumílan er 1.609 metrar og er ein af viðurkenndum vegalengdum götuhlaupa. Með mótinu verður í fyrsta sinn keppt um Íslandsmeistaratitla í götumílu hér á landi og því um sögulegan viðburð að ræða fyrir íslenskt hlaupafólk,“ sagði á vef Frjálsíþróttasambands Íslands fyrir hlaupið. „Brautin er staðsett á Kvartmílubrautinni í Hafnarfirði og er sérlega hentug fyrir hraðhlaup, þar sem hún er flöt, malbikuð og býður upp á góðar aðstæður fyrir keppendur.“

Einnig var keppt í opnum almennum flokkum karla og kvenna. Þar var Agnar Darri Sveinsson sigurvegari karla á tímanum 4 mín. og 49 sek. en Sigrún Erla Lárusdóttir sigraði í kvennaflokki á 5 mín. og 52 sek.

Keppnin bar heitið Vecct mílan og var í beinni útsendingu á Vísi. Upptaka verður birt á Vísi síðar í dag að því er fram kom þar í morgun.

Baldvin Þór Magnússon og Andrea Andrea Kolbeinsdóttir á verðlaunapallinum í gærkvöldi. Þau eru fyrstu Íslandsmeistarar í götumíluhlaupi og fengu 250.000 krónur í verðlaunafé. Mynd af Vísi: Vecct/Aron Guan