Fara í efni
Menntamál

Þurfti virkilega að slíta samstarfinu?

Sandra María Jessen í eftirminnilegum leik, þegar hún gerði öll mörkin í 4:0 sigri Þórs/KA á FH í Bestu deildinni í apríl 2024 í Hafnarfirði. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Sandra María Jessen, leikmaður 1. FC Köln í Þýskalandi og fyrrverandi fyrirliði Þórs/KA segist hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum þegar tilkynnt var að KA hefði ákveðið að hætta samstarfi við Þór um kvennalið í knattspyrnu.

Hún segist eiga erfitt með að losna við þá tilfinningu að heildarhagsmunir kvennaknattspyrnunnar á Akureyri hafi ekki verið settir í fyrsta sæti við þessa ákvörðun. „Ein af þeim ástæðum sem hafa verið nefndar fyrir breytingunum er að skapa fleiri tækifæri fyrir unga og efnilega leikmenn og sýna þeim að leiðin upp í meistaraflokk sé raunhæf. Það er auðvitað markmið sem ég get heilshugar tekið undir. En þurfti virkilega að slíta samstarfi sem hefur skilað svona miklum árangri til þess að ná því fram?“

Ekki boðleg framkoma 

Söndru þykir líka sárt hvernig staðið var að hlutunum. „Mér finnst það í raun ákveðin vanvirðing gagnvart því fólki sem hefur lagt hjarta sitt og sál í að byggja þetta félag upp og halda því gangandi í gegnum árin,“ skrifar hún. „Að þessir aðilar fái ekki einu sinni að heyra af svo stórri ákvörðun áður en hún verður opinber, hvað þá að hafa eitthvað um hana að segja, finnst mér ótrúlega sorglegt. Að leikmenn þurfa að lesa um þetta á netinu eða vera spurður út í bæ um framtíð félagsins sem maður hefur lagt svo mikið í, án þess að vita sjálfur nokkurn skapaðan hlut, er að mínu mati ekki boðleg framkoma. Þarna hefði verið hægt að sýna miklu meiri virðingu og fagmennsku.“


Færsla Söndru Maríu er svohljóðandi í heild:

Jæja, nú er ég loksins aðeins farin að melta þessar stóru fréttir um samstarfslok Þórs og KA í kvennaknattspyrnunni á Akureyri. Ég hef verið að velta því fyrir mér síðustu daga hvort ég eigi yfir höfuð að tjá mig um þetta, en þegar eitthvað stendur manni jafn nærri hjartanu og Þór/KA gerir mér, þá er erfitt að segja ekki neitt.

Ég ætla ekki að fela það að ég er ótrúlega svekkt og fyrir miklum vonbrigðum með þessa ákvörðun. Ekki eingöngu vegna þeirrar sterku tengingar sem ég hef við félagið og alls þess sem það hefur gefið mér í gegnum árin, heldur fyrst og fremst vegna þess að mér er innilega annt um framtíð kvennaknattspyrnunnar á Akureyri. Framtíð sem ég hef sjálf reynt að leggja mitt af mörkum til að byggja upp og styrkja. Og því meira sem ég hugsa um þessa ákvörðun, því erfiðara á ég með að sjá hvernig hún eigi að vera kvennaknattspyrnunni í bænum til framdráttar.

Sandra María Jessen í leik með 1. FC Köln í þýsku deildinni í vetur. Mynd af vef félagsins.

Þór/KA er svo miklu meira en bara fótboltalið í mínum augum. Þetta er félag sem hefur verið byggt upp með ótrúlegri elju, metnaði og fórnfýsi í gegnum árin. Félag sem hefur skapað ómetanlegar minningar, alið af sér frábærar knattspyrnukonur, verið fyrirmynd fyrir ungar stelpur og sýnt að það er hægt að ná langt í fótbolta fyrir norðan. Ég er óendanlega stolt af því að hafa fengið að vera hluti af þeirri sögu og lagt mitt af mörkum til hennar.

Einnig þykir mér sárt hvernig staðið var að hlutunum. Mér finnst það í raun ákveðin vanvirðing gagnvart því fólki sem hefur lagt hjarta sitt og sál í að byggja þetta félag upp og halda því gangandi í gegnum árin. Fólki sem hefur gefið ótal klukkustundir af tíma sínum, oft án þess að ætlast til nokkurs í staðinn, einfaldlega vegna þess að því er annt um félagið og framtíð þess. Að þessir aðilar fái ekki einu sinni að heyra af svo stórri ákvörðun áður en hún verður opinber, hvað þá að hafa eitthvað um hana að segja, finnst mér ótrúlega sorglegt. Að leikmenn þurfa að lesa um þetta á netinu eða vera spurður út í bæ um framtíð félagsins sem maður hefur lagt svo mikið í, án þess að vita sjálfur nokkurn skapaðan hlut, er að mínu mati ekki boðleg framkoma. Þarna hefði verið hægt að sýna miklu meiri virðingu og fagmennsku.

Ég á líka erfitt með að losna við þá tilfinningu að heildarhagsmunir kvennaknattspyrnunnar á Akureyri hafi ekki verið settir í fyrsta sæti við þessa ákvörðun.

Ein af þeim ástæðum sem hafa verið nefndar fyrir breytingunum er að skapa fleiri tækifæri fyrir unga og efnilega leikmenn og sýna þeim að leiðin upp í meistaraflokk sé raunhæf. Það er auðvitað markmið sem ég get heilshugar tekið undir. En þurfti virkilega að slíta samstarfi sem hefur skilað svona miklum árangri til þess að ná því fram?

Lið Þórs/KA – Íslandsmeistari 2012. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Hefði ekki verið hægt að finna aðrar leiðir? Til dæmis með varaliði eða einhvers konar þróunarliði, líkt og Hamrarnir voru á sínum tíma, þar sem ungir leikmenn hefðu fengið tækifæri til að vaxa, þroskast og taka sín fyrstu skref í meistaraflokki án þess að fórna því sem hefur verið byggt upp?

Og hvað gerist svo ef KA-liðið nær góðum árangri og vinnur sig upp í Lengjudeildina? Verður markmiðið þá ekki eðlilega að styrkja liðið enn frekar og stefna hærra? Þá er hætt við að sú hugmynd að skapa fleiri tækifæri fyrir unga leikmenn fari að einhverju leyti út um þúfur. Samkeppnin um leikmenn, fjármagn og styrktaraðila eykst og þeir ungu leikmenn sem áttu að fá fleiri tækifæri gætu aftur lent aftar í röðinni. Mér finnst mikilvægt að spyrja hvort langtímaafleiðingar þessarar ákvörðunar hafi verið hugsaðar nægilega vel.

Þór/KA hefur um árabil verið eitt allra sterkasta og árangursríkasta knattspyrnulið Norðurlands. Það hefur ekki gerst af sjálfu sér. Á bak við þann árangur liggur áralöng vinna, samheldni og skýr framtíðarsýn. Ég óttast að með því að skipta þessum krafti í tvennt séum við að veikja það sem við höfum byggt upp.

Sandra María og stöllur hennar eftir að hún braut ísinn gegn FH í lokaumferð Íslandsmótsins haustið 2017. Þór/KA varð að vinna leikinn til að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn – og það tókst. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Til að byrja með má gera ráð fyrir að margir af þeim leikmönnum sem eru tilbúnir að spila á hæsta stigi velji að halda áfram með Þór. En hvað gerist eftir nokkur ár, ef bæði félögin eru farin að berjast um sömu leikmennina? Hvað gerist þegar sá kraftur sem áður fór í eitt sterkt lið dreifist á tvö? Við gætum endað með tvö lið sem ná ekki sama árangri og eitt sameinað lið hefur gert undanfarin 15+ ár.

Og svo má ekki gleyma því að áhrif þessarar ákvörðunar gætu náð langt út fyrir Akureyri. Þór/KA hefur í gegnum árin ekki aðeins verið mikilvægur hluti af knattspyrnunni í bænum, heldur einnig stutt við starfsemi annarra félaga á Norðurlandi. Félög á borð við Völsung og Dalvík/Reyni hafa fengið leikmenn að láni frá okkur, sem hefur meðal annars hjálpað þeim að halda úti meistaraflokksstarfi og skapað tækifæri fyrir ungar stelpur á þessum stöðum til að halda áfram í fótbolta þegar þær eldast.

Sandra María og dóttir hennar, Ella Ylví Küster, eftir að Sandra tók við Flugleiðahorninu sem besti leikmaður Íslandsmótsins í knattspyrnu 2024. Hún var einnig markahæst í Bestu deildinni það sumar. Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson

Ég efast ekki um að bæði Þór og KA muni vilja halda áfram að styðja við þessi félög og finna leiðir til samstarfs. En þegar kraftarnir dreifast á fleiri lið og þörfin fyrir leikmenn eykst, hversu mikið svigrúm verður þá eftir til að lána leikmenn annað? Og hvað verður um þær stelpur sem vilja halda áfram að spila fótbolta í sínum heimabyggðum, ef erfiðara reynist að halda úti meistaraflokksliðum þar?

Ég vona innilega að þetta verði ekki raunin, en mér finnst þetta enn ein ástæða þess að mikilvægt er að horfa á heildarmyndina. Við erum ekki bara að tala um framtíð eins knattspyrnuliðs eða tveggja félaga á Akureyri, heldur mögulega framtíð og tækifæri ungra knattspyrnukvenna víðs vegar um Norðurland.

Og þá vaknar hjá mér sú spurning sem mér finnst hvað mikilvægust: Hvaða áhrif hefur þetta á framtíð ungra knattspyrnukvenna á Akureyri og Norðurlandi öllu? Ef við náum ekki lengur að halda úti liði sem getur keppt við þau bestu á landinu, hvað verður þá um okkar efnilegustu leikmenn? Munum við missa þær fyrr suður til þess að þær geti haldið áfram að þróast og spila á hæsta stigi?

Og hvað verður þá um fyrirmyndirnar fyrir ungu stelpurnar okkar? Þær sem geta í dag mætt á völlinn, horft á bestu knattspyrnukonur bæjarins spila og hugsað með sér: „Þarna ætla ég að vera einn daginn.“

Það er svo ótrúlega dýrmætt að hafa sterkt lið í heimabænum sínum. Að geta alist upp með þann draum að spila á hæsta stigi fyrir félagið sitt, án þess að þurfa endilega að flytja í burtu til þess.

Lið Þórs/KA – Íslandsmeistari 2017. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Ég veit að þetta er ekki endilega sú framtíð sem bíður okkar. Ég vona svo sannarlega að áhyggjur mínar reynist óþarfar. En mér finnst þær raunverulegar og mér finnst við skulda framtíð kvennaknattspyrnunnar á Norðurlandi að hugsa lengra en bara til næstu ára.

Ég hef sjálf fengið að upplifa hvað það er sérstakt að spila fyrir heimabæinn sinn, fyrir fólkið sitt og fyrir félag sem maður ber ómælda ást til.

Ég hef reynt að leggja mitt af mörkum, bæði innan vallar og utan, til þess að sýna ungum stelpum fyrir norðan að draumarnir þeirra geti ræst. Að þær geti náð langt, sama hvaðan þær koma.

Þess vegna tekur þetta mig svona sárt.

Ég ber mikla virðingu fyrir báðum félögum og öllu því góða fólki sem starfar innan þeirra. Ég efast ekki um að margir hafi góðan ásetning og vilji gera það sem þeir telja best. En það þýðir ekki að maður þurfi að vera sammála ákvörðuninni eða þeirri leið sem var farin.

Ég hefði óskað þess að meiri samvinna, samtal, fagmennska og virðing hefðu einkennt þetta ferli. Og umfram allt að framtíð kvennaknattspyrnunnar, ekki bara á Akureyri heldur á Norðurlandi öllu, hefði verið höfð að leiðarljósi.

Þór/KA mun alltaf eiga stóran stað í hjarta mínu. Allar minningarnar, fólkið, sigrarnir, töpin, vináttan og allt það sem við höfum byggt upp saman verður aldrei tekið frá okkur. Það er saga sem ég er ótrúlega stolt af að hafa fengið að vera hluti af.

Ég óska báðum félögum alls hins besta í því sem fram undan er. Ég vona innilega að bæði félög beri gæfu til að hlúa að kvennaknattspyrnunni í bænum og setja hag leikmannanna og framtíð þeirra í fyrsta sæti.

Og þó að leiðir Þórs og KA skilji nú, þá vona ég af öllu hjarta að það sé ekki til frambúðar. Kannski munu leiðirnar liggja saman á ný einn daginn. Ekki vegna þess að annað félagið hafi þurft að gefa eftir fyrir hinu, heldur vegna þess að saman getum við skapað eitthvað stærra og sterkara fyrir næstu kynslóðir knattspyrnukvenna á Akureyri.

Takk fyrir mig Þór/KA.