Menntamál
Toppslagir, tvíhöfði og vítabani í dag
07.11.2026 kl. 08:00
Tveir blakleikir og einn íshokkíleikur eru í boði fyrir Akureyringa sem langar til að bregða sér á leik á Akureyri í dag. Tvö blaklið frá KA taka á móti HK-liðum og SA-konur taka á móti liði Fjölnis. Fjórða Akureyrarliðið í sviðsljósi dagsins er kvennalið Þórs í körfubolta sem sækir B-lið Njarðvíkinga heim.
- Blakáhugafólk fær svokallaðan tvíhöfða í KA-heimilinu í dag þegar karla- og kvennalið KA mæta liðum HK úr Kópavogi. Karlaliðin spila fyrri leik dagsins. Bæði KA og HK hafa átt í smá basli með stigasöfnun í upphafi móts, KA með einn sigur og HK engan. Bæði lið hafa spilað fimm leiki. KA er í fimmta sæti Unbroken-deildarinnar með fimm stig, þar sem liðið hefur unnið einn leik og tvívegis tapað 2-3 í hrinum talið. En HK er án stiga á botninum, hefur fimm fyrstu leikjum sínum ýmist 1-3 eða 0-3.
- Seinni blakleikur dagsins verður hins vegar toppleikur sömu félaga í Unbroken-deild kvenna. Íslandsmeistarar HK koma norður, en Kópavogsliðið er í efsta sæti deildarinnar með 15 stig að loknum fimm leikjum. KA er í 2. sætinu með 12 stig, en hefur leikið einum leik færra en HK. Bæði lið eru taplaus það sem af er keppnistímabilinu og má því búast við hörkuviðureign.
- Kvennalið Þórs í körfubolta hefur verið á ágætu skriði í undanförnum leikjum eftir naumt tap í fyrsta leik tímabilsins. Þrjú efstu lið deildarinnar hafa öll tapað einum leik, en Selfoss er á toppnum með fjóra sigra í fimm leikjum og þar á eftir koma bæði Þórsliðin, úr Þorlákshöfn og frá Akureyri, með þrjá sigra í fyrstu fjórum leikjum sínum. Keflavík b hefur spilað þrjá leiki og unnið þá alla, er eina taplausa lið deildarinnar. Þór sækir B-lið Njarðvíkur heim í dag. Njarðvíkingar eru í 9. sæti deildarinnar, hafa unnið einn af fyrstu þremur leikjum sínum.
- Kvennalið Skautafélags Akureyrar í íshokkí hefur byrjað tímabilið afar vel og er komið með gott forskot á toppi Toppdeildarinnar. SA hefur tíu stig eftir fjóra leiki, en SR kemur næst með þrjú stig úr fyrstu fjórum leikjum sínum. Fjölnir hefur aðeins spilað tvo leiki og er með tvö stig í þriðja sætinu. Lið Fjölnis kemur einmitt norður í dag og mætir SA í Skautahöllinni á Akureyri. SA hefur endurheimt Aðalheiði Önnu Ragnarsdóttur eftir dvöl í Svíþjóð og spilar hún sinn fyrsta leik með liðinu í dag eftir heimkomuna.
Fjölnir vann SR í síðasta leik sínum, í sögulegum leik sem fór í framlengingu og vítakeppni þar sem samtals þurfti 42 vítaskot til að ráða úrslitunum. Þar kom við sögu nýr erlendur markvörður liðsins, Cassandra Goyette, sem setti Íslandsmet í sínum fyrsta leik með félaginu þegar hún varði 20 vítaskot. - Það verða reyndar fleiri hokkíleikmenn úr SA í sviðsljósinu um helgina því í Toppdeild karla spilar U20 landsliðshópurinn tvo leiki við Fjölni á skautasvellinu í Egilshöllinni í Reykjavík, þann fyrri í dag kl. 16:45 og þann seinni í fyrramálið kl. 9:45. Í U20 liðinu eru fjölmargir leikmenn úr röðum Skautafélags Akureyrar.
- Blak
Unbroken-deild karla
KA-heimilið kl. 13
KA - HK
- Blak
Unbroken-deild kvenna
KA-heimilið kl. 15:30
KA - HK
- Körfubolti
1. deild kvenna,
Íþróttahöllin í Njarðvík kl. 16
Njarðvík b - Þór
- Íshokkí
Toppdeild kvenna
Skautahöllin á Akureyri kl. 16:45
SA - Fjölnir