73 brautskráðust frá Verkmenntaskólanum
Sjötíu og þrír nemendur brautskráðust frá Verkmenntaskólanum á Akureyri við hátíðlega athöfn í Menningarhúsinu Hofi síðdegis í gær. Brautskráningarnemar koma af mörgum og ólíkum námsbrautum skólans, bæði í starfsnámi og bóklegu námi til stúdentsprófs, að því er segir á vef skólans.
Af stúdentsprófsbrautum voru nemendur brautskráðir af félags- og hugvísindabraut, fjölgreinabraut, íþrótta- og lýðheilsubraut, listnáms- og hönnunarbraut – myndlistarlínu, náttúruvísindabraut og viðskipta- og hagfræðibraut. Einnig voru brautskráðir stúdentar sem hafa lokið viðbótarnámi eftir starfsnám. Í starfsnámi voru brautskráðir sjúkraliðar, húsasmiður, stálsmiður, kjötiðnaðarmaður, rafeindavirkjar og matartæknar. Þá voru brautskráðir heilsunuddarar, félagsliði og iðnmeistarar.

Mynd: Páll A. Pálsson
Benedikt Barðason brautskráði í gær fyrsta námshópinn í Hofi eftir að hann tók við stöðu skólameistara VMA 1. ágúst síðastliðinn en hefur þó reynslu af því skemmtilega verkefni; Benedikt brautskráði nemendur í desember 2019 og í maí 2020 þegar hann leysti Sigríði Huld Jónsdóttur af í námsleyfi hennar sem skólameistari skólaárið 2019-2020. Vegna Covid-faraldursins var vorbrautskráningin 2020 með óhefðbundnum hætti í Gryfjunni, samkomusal skólans.
Í mótbyr sést úr hverju fólk er gert
„Kannski eru breytingar það eina sem er öruggt í lífinu. Til þess að leiða þær breytingar þarf forystu, forystu í merkingunni að leiða til hins betra,“ sagði Benedikt í upphafi brautskráningarræðu sinnar þegar hann beindi orðum sínum til brautskráningarnema. „Þegar forysta er veitt er mikilvægt að hlusta, sýna virðingu og hógværð því þetta eru lykilatriði í velgengni. Að takast á við mótlæti og læra af mistökum, eigin og annarra. Forystu er þörf í eigin lífi og þeim störfum sem á fjörur ykkar reka á ævinni. Forysta felst í að leiða, axla ábyrgð og takast á við áskoranir. Í forystu felst líka að horfast í augu við aðstæður, ógnanir - og sjá tækifæri, því að í flestum ógnum felast tækifæri,“ sagði skólameistari.

Benedikt Barðason skólameistari á brautskráningarhátíðinni í gær. Mynd: Hilmar Friðjónsson
„Faðir minn heitinn sagði alltaf, þegar ég var eitthvað að kvarta … að í mótbyr sést úr hverju fólk er gert,“ sagði Benedikt og lagði áherslu á það atriði með því að endurtaka: „Í mótbyr sést úr hverju fólk er gert“.
Skólameistari sagði mótbyr og mótlæti oft hafa laðað fram margar af þeim bestu hliðum sem samfélög hafa svo sem hjálpsemi, kærleika, samkennd og virðingu fyrir öðrum. „Dagurinn í dag er táknræn staðfesting á því, þar sem flestir nemendur hafa lent í mótbyr í náminu en verkefnin eru til að takast á við þau. Það er ekkert líf svo einfalt að það flækist ekki einhvern tímann.“
Jöfnuður og velsæld
Benedikt ræddi síðan almennt um skólann og skólahald og mikilvægi VMA í samfélaginu.
„Það er svo að skólahald snýst um nemendur. Skóli er fólkið sem þar er á hverjum tíma, nemendur og starfsfólk. Skóli er stærri, þ.e. stærra og áhrifaríkara tæki til jöfnuðar, velsældar og samfélagsbætingar en flesta grunar. Framhaldsskóli snýst auðvitað um undirbúning nemenda undir frekara nám eða sérhæfð störf en hann snýst líka um alhliða þroska, þátttöku í samfélaginu, siðferðisvitund, ábyrgðarkennd, víðsýni, frumkvæði, umburðarlyndi, jafnrétti, sjálfstraust og gagnrýna hugsun.“

Theodóra Tinna Reykjalín Krístínardóttir, nýstúdent af náttúruvísindabraut, flutti ávarp brautskráningarnema í Hofi. Mynd: Hilmar Friðjónsson.
Þekkingarstóriðja
„Við skulum líka hafa í huga að skólahald á Akureyri, með þeim hætti sem það er í dag, er ekki sjálfgefið,“ sagði skólameistari. „Að baki því er áratuga barátta og þrotlaus vinna. Þeirri þrotlausu vinnu er alls ekki lokið. Hún heldur áfram í desember 2025 eins og alla mánuði ársins.
Skólana mætti kannski kalla þekkingarstóriðju. Stóru skólarnir þrír á Akureyri veita um níu milljörðum króna beint af fjárlögum inn í hagkerfi Eyjafjarðarsvæðisins. Af starfsemi þeirra leiðir að sérhæft starfsfólk velur sér búsetu hér og með þeim makar og börn. Af starfseminni leiðir viðhald húsnæðis, ýmis konar þjónusta, heimavist, nemendagarðar, leikskólar - og allt þetta fólk þarf að kaupa í matinn, skemmta sér, láta gera við bíla, skipta um eldhúsinnréttingar og þannig getum við haldið lengi áfram. Þetta eru eingöngu þau augljósu áhrif þess að hafa Háskólann, Menntaskólann og Verkmenntaskólann á Akureyri.“

Þórir Nikulás Pálsson nýstúdent af fjölgreinabraut flutti lagið Alive eftir Davin, í Hofi í gær. Mynd: Hilmar Friðjónsson.
Stóra menntahringrásin
Benedikt Barðason sagði hin samfélagslegu áhrif 40 ára sögu Verkmenntaskólans á samfélag Norðursins mjög mikil og trúlega verulega vanmetin. „Á síðustu 20 árum hefur VMA gefið út um 7000 útskriftarskírteini – sett í samhengi, að þriðji hver Akureyringur hafi fengið útskriftarskírteini á þessum 20 árum,“ sagði hann.
„Þegar komið er í grunnskólana, sjúkrahús, öldrunarheimili, heilsugæslu, banka eða á hvaða vinnustað sem er, heilsar maður gömlum nemendum af stúdentsprófsbrautunum sem eru, allt í einu, orðnir kennarar, hjúkrunarfræðingar, læknar, sjúkraliðar, matartæknar, viðskiptafræðingar, tölvunarfræðingar, tæknifræðingar og svo framvegis,“ sagði skólameistari.

Við brautskráninguna í gær var flutt atriði úr Ronju ræningjadóttur sem Leikfélag VMA frumsýnir í febrúar næstkomandi. Mynd: Hilmar Friðjónsson.
„Ekki síður á þetta við hjá verktökum og iðnfyrirtækjum. Húsasmiðir, rafvirkjar, stálsmiðir, vélvirkjar, múrarar, píparar, matreiðslumenn, rafeindavirkjar, vélstjórar, bifvélavirkjar, hárgreiðslufólk og svo framvegis. Þar heilsar maður ævinlega gömlum nemendum. Iðnaðarmenn klára svo margir iðnmeistaranám og halda áfram að starfa hjá rótgrónum fyrirtækjum eða stofna eigin fyrirtæki - og taka svo nýja iðnnema á samning - og þannig heldur hringrásin áfram,“ sagði Benedikt Barðason, skólameistari, og bætti við: „Stóra menntahringrásin, fóðrun hennar og viðhald, er eitt af okkar æðri verkefnum og það er okkar hlutverk sem samfélags að viðhalda hringrásinni.“
Lærði mikilvægi þess að gera hlutina
Theodóra Tinna Reykjalín Krístínardóttir, nýstúdent af náttúruvísindabraut, flutti ávarp brautskráningarnema í Hofi í gær. Hún sagðist m.a. hafa lært „rosalega mikið af því að stökkva í djúpu laugina og gera eitthvað sem ég vissi lítið um en gera samt mitt allra besta, mér hefði aldrei dottið í hug að ég væri að fara að taka þátt í stærðfræðikeppnum eða Gettu betur en þarna kynntist ég góðum vinum og lærði margt.“
Hún sagðist ekki bara hafa lært um eðlisvarma og setningahluta „heldur lærði ég líka að eignast vini, að vinna með öðru fólki og ég lærði mikilvægi þess að gera hlutina.“
Theodóra sagði að nú væri hægt að komast í gegnum skólann með því að mæta bara í tíma og sitja í símanum og skila verkefnum með eins lítilli fyrirhöfn og hægt er, „en það hefði ekki kennt mér neitt, og svo er bara mikið skemmtilegra að hafa áhuga á því sem maður er að gera og að leggja vinnu í það og ef maður gerir sitt allra besta sést árangurinn og manni getur liðið vel með sína frammistöðu.“
Eins og hefð er fyrir fengu nemendur sem hafa lagt sín lóð á vogarskálarnar í félagslífi blóm frá skólanum sem viðurkenningavott fyrir framlag sitt. Blómvendina fengu afhenta Theodóra Tinna Reykjalín Kristínardóttir, Þórir Nikulás Pálsson, Sigrún Dalrós Eiríksdóttir og Alexander Ingvarsson.