Fara í efni
MA – VMA

Leikfélag VMA sýnir Með allt á hreinu

Leikfélag Verkmenntaskólans á Akureyri hefur valið söngleikinn Með allt á hreinu sem uppsetningu vetrarins. Verkið byggir á samnefndri kvikmynd Stuðmanna frá árinu 1982, sem löngu er orðin klassík í íslenskri kvikmyndasögu. Stefnt er að frumsýningu í Gryfjunni í VMA 19. febrúar 2027. 

Í verkinu er fjöldi þekktra dægurlaga sem Stuðmenn og Grýlurnar gáfu út á sínum tíma. Þótt kvikmyndin hafi verið frumsýnd fyrir rúmum fjórum áratugum telur Ásta Ólöf Jónsdóttir, formaður Leikfélags VMA, nokkuð víst að mörg laganna séu enn vel þekkt meðal framhaldsskólanema, þótt yngri kynslóðin þekki ekki endilega myndina sjálfa.

Í frétt á vefsíðu VMA er rætt við Ástu Ólöfu, sem er á öðru ári í VMA. Hún lét strax til sín taka í leiklistinni á fyrsta námsári sínu þegar hún lék Ronju ræningjadóttur í samnefndri uppfærslu Leikfélags VMA í febrúar 2026. Ásta Ólöf segist hafa heillast af verkinu Með allt á hreinu þegar hún sá uppfærslu nemenda Framhaldsskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki árið 2024.

Þrjátíu hlutverk og fjölbreytt önnur verkefni

Kolbrún Lilja Guðnadóttir hefur verið ráðin leikstjóri uppsetningarinnar. Hún þekkir vel til hjá Leikfélagi VMA en hún leikstýrði uppfærslu félagsins á Tröllum árið 2020. Kolbrún starfar meðal annars sem kennari við sviðslistabraut Menntaskólans á Akureyri og hefur einnig leikstýrt hjá Freyvangsleikhúsinu og Leikfélagi Hörgdæla.

Um þrjátíu persónur eru í Með allt á hreinu og því þarf stóran hóp til að koma sýningunni á svið. Auk leikara verður þörf fyrir fólk í tæknivinnu, sviðsvinnu og búningagerð. Allar duglegar og viljugar hendur séu vel þegnar í svo viðamikið og skemmtilegt verkefni. Söngur og dans skipa einnig stóran sess í uppfærslunni og fagfólk verður fengið til að leiðbeina á þeim sviðum.

Leikprufur fara fram 2. desember klukkan 16. Ásta Ólöf hvetur áhugasama nemendur til að mæta og láta vita af áhuga sínum á að taka þátt, hvort sem þeir vilja leika eða leggja hönd á plóg við önnur verkefni. Að loknum prufum verður skipað í hlutverk og leikarar fá handrit fyrir jólafrí. Æfingar hefjast síðan af fullum krafti strax eftir áramót.