Fara í efni
Körfuknattleikur

Þór/KA-Víkingur í dag – síðasti fyrir EM hlé

Hulda Björg Hannesdóttir í leik Þórs/KA gegn Breiðabliki á dögunum. Mynd: Ármann Hinrik.

Besta deild kvenna í knattspyrnu er á leið í frí á meðan íslenska landsliðið tekur þátt í lokamóti EM. Lokaleikur Þórs/KA fyrir EM hléið er í Boganum í dag kl. 17 þegar stelpurnar okkar mæta liði Víkings.

Úrslit síðustu leikja hjá Þór/KA hafa ekki verið eins og til var sáð, tvö töp í deildinni gegn Þrótti og Breiðabliki og tap í bikarkeppninni þar á milli fyrir FH. Það má því gera ráð fyrir að stelpurnar mæti af krafti til leiks í dag, staðráðnar í að fara í EM-fríið með sigri í 10. umferð mótsins. Gengi Víkingsliðsins hefur ekki verið á sömu nótum og í fyrra þegar liðið kláraði mótið í 3. sæti eftir sigur gegn Þór/KA á Greifavellinum í lokaumferðinni, þannig að Víkingsstelpurnar koma örugglega einnig til leiks í dag staðráðnar í að fara með sigur í farteskinu heim og í fríið. 

Að loknum níu umferðum er Víkingur í næstneðsta sæti deildarinnar með sjö stig. Aðeins FHL er fyrir neðan Víking, en Austfirðingar hafa ekki náð sér í stig það sem af er deildarkeppninni. Þór/KA hefur verið í 4. sætinu næstum frá upphafi móts og situr þar enn með 15 stig. Fram kom upp að hlið Þórs/KA með sigri í 8. umferðinni. Fyrir 10. umferðina voru þrjú lið, Breiðablik, FH og Þróttur, jöfn á toppnum með 22 stig. 

  • Besta deild kvenna í knattspyrnu, 10. umferð
    Boginn kl. 17
    Þór/KA - Víkingur 

Tveimur leikjum er nú þegar lokið í 10. umferðinni. Þróttur endurheimti toppsætið með sigri á Fram í gær. Þrír leikir fara fram í dag og er leikur Þórs/KA og Víkings síðasti leikur dagins og þar með sá síðasti fyrir EM hléið.

Leikir 10. umferðar

  • FHL - Tindastóll 1-4
  • Fram - Þróttur 1-3
  • FH - Valur kl. 14
  • Stjarnan - Breiðablik kl. 14
  • Þór/KA - Víkingur kl. 17