Fara í efni
Körfuknattleikur

Handbolti: Köflótt hjá Þór í tapi gegn FH

Örvhenta skyttan Mikkel Bak Scheumann Jensen skoraði nokkur mörk með þrumufleygum gegn FH í dag en það dugði ekki til. Mynd: Ármann Hinrik.

FH vann sjö marka sigur á Þór, 37:30, í viðureign liðanna í efstu deild karla í handknattleik í Höllinni í dag. Erfið byrjun Þórsara í leiknum gerði það að verkum að þeir þurftu að elta Hafnfirðinga allan tímann og þótt þeim tækist að minnka muninn í eitt mark í seinni hálfleik voru gestirnir sterkari í lokin.

Jafnræði var með liðunum fyrstu fimm mínúturnar en í stöðunni 3:2 fyrir FH snerist leikurinn algerlega þeim í vil. Um 10 mínútum síðar var staðan orðin 11:3 fyrir FH. Á þessum kafla komust Þórsarar ekkert áleiðis gegn vörn gestanna og á bak við hana varði Jón Þórarinn Þorsteinsson eins og berserkur. FH-ingar skoruðu hins vegar mörg auðveld mörk eftir að sóknarlotur Þórsara runnu út í sandinn. Þórsarar hafa samt séð það svart áður og lögðu ekki árar í bát. Í stöðunni 14:6 fyrir FH kom góður kafli hjá Þór og þeir skoruðu sjö mörk gegn einu á skömmum tíma. Munurinn allt í einu kominn niður í tvö mörk, 15:13, og allt gat gerst. FH-ingar skoruðu hins vegar tvö síðustu mörk hálfleiksins og leiddu 17:13 í hléi.

Og fyrstu tvö mörkin eftir hlé voru líka FH-inga. En aftur gáfust Þórsarar ekki upp og þeim tókst með mikilli seiglu að minnka muninn jafnt og þétt. Um miðjan seinni hálfleikinn munaði aðeins einu marki, 25:24. Þá tóku FH-ingar aftur við sér og að þessu sinni höfðu Þórsarar ekki orku til að halda í við þá. Hafnfirðingar sigldu öruggum sigri heim, 37:30, og komust með sigrinum upp fyrir KA í 3. sæti Olísdeildarinnar með 13 stig. Þórsarar eru enn með 6 stig að 9 umferðum loknum og eru í 8. sæti.

10. umferð deildarinnar hefst þann 12. nóvember og þá fara Þórsarar suður í Hafnarfjörð og spreyta sig gegn hinu Hafnarfjarðarliðinu, Haukum, sem hafa unnið alla 9 leiki sína og eru langefstir í deildinni.

Mörk Þórs: Bertram Simonsen 8, Hafþór Már Vignisson 7, Mikkel Bak Scheumann Jensen 4, Sigurður Ringsted Sigurðsson 3, William Skovager 3, Brynjar Hólm Grétarsson 2, Lárus Breki Gærdbo Ágústsson 1, Oddur Gretarsson 1, Oliver Möller Christensen 1.

Varin skot: Nikola Radovanovic 15.

Mörk FH: Einar Rafn Eiðsson 6, Ómar Darri Sigurgeirsson 6, Gunnar Kári Bragason 5, Antoine Óskar Pantano 4, Eiður Rafn Valsson 4, Símon Michael Guðjónsson 4, Ágúst Guðmundsson 2, Ingvar Dagur Gunnarsson 2, Jón Bjarni Ólafsson 2, Einar Örn Sindrason 1, Leonharð Þorgeir Harðarson 1.

Varin skot: Jón Þórarinn Þorsteinsson 19, Ólafur Rafn Gíslason 1.