Fara í efni
Knattspyrna

Ögurstund hjá SA, KA gæti farið í undanúrslit

Skíðamót, handbolti, körfubolti, listskautar og íshokkí á dagskrá dagsins. Tveir heimaleikir í boði, KA gegn ÍBV í handbolta karla og Þór gegn Fjölni í körfubolta kvenna. Þá geta úrslitin í einvígi SA og SR í Toppdeild kvenna í íshokkí ráðist í dag. Skíðamóti Íslands lýkur í dag.

Samhliða svig í Hlíðarfjalli

Skíðamóti Íslands lýkur í Hlíðarfjalli og í Ólafsfirði í dag. Keppt verður í samhliða svigi í Hlíðarfjalli og liðaspretti í skíðagöngu í Ólafsfirði.

Dagskráin í Hlíðarfjalli í dag: 

  • Kl. 10:00 – Start

Verðlaunaafhending að móti loknu við Strýtuskála

Dagskráin í Ólafsfirði í dag: 

Liðasprettur, frjáls aðferð

  • Kl. 11:00 – 13–16 ára stúlkur
  • Kl. 11:20 – 13–16 ára drengir
  • Kl. 11:40 – Konur 17+
  • Kl. 12:10 – Karlar 17+

KA getur komið sér í undanúrslit

Annar leikur KA og ÍBV í átta liða úrslitum Olísdeildarinnar í handbolta er á dagskrá á Akureyri í dag. KA vann í Eyjum á miðvikudag, í tvíframlengdum leik. Vinna þarf tvo leiki til að fara áfram í undanúrslit þannig að KA getur í dag komið sér áfram í undanúrslit Olísdeildarinnar með sigri.

  • Olísdeild karla í handbolta
    Átta liða úrslit, leikur 2
    KA-heimilið kl. 15
    KA - ÍBV
  • Útsending: Handboltapassinn í Sjónvarpi Símans
    Áskriftarsjónvarp

Umspil í 1. deild kvenna að hefjast

Umspil fjögurra liða um laust sæti í Bónusdeild kvenna í körfubolta á næsta tímabili hefst í dag. Þór endaði í 2. sæti deildarinnar og mætir liði Fjölnis, sem endaði í 3. sætinu. Sigurliðið í einvígi þessara liða mætir svo sigurliði úr viðureignum Hamars/Þórs og Selfoss í úrslitaeinvígi um sæti í efstu deild.

  • Bónusdeild/1. deild kvenna í körfubolta
    Umspil, undanúrslit, leikur 1
    Íþróttahöllin á Akureyri kl. 16
    Þór - Fjölnir
  • Útsending: KKÍ TV á Sýn
    Áskriftarsjónvarp

SA verður að vinna í dag

Fjórði leikur í úrslitakeppni Toppdeildar kvenna í íshokkí er á dagskrá í Skautahöllinni í Laugardal í dag, en leiknum far frestað um einn dag í framhaldi af frestun leiks á fimmtudag á Akureyri. Eftir tap á heimavelli á föstudag verður lið Skautafélags Akureyrar að vinna í dag til að fá tækifæri til að vinna einvígið á heimavelli í næstu viku. Vinni SR í dag tryggja Reykvíkingar sér Íslandsmeistaratitilinn í fyrsta skipti í sögu kvennaliðs félagsins, og taka báða stóru titlana í Laugardalinn. 

  • Toppdeild kvenna í íshokkí
    Úrslit, leikur 4
    Skautahöllin í Laugardal kl. 16:45
    SR - SA
  • Útsending: icehockeyiceland.tv
    Áskrift að rás eða stökum leikjum

Vormót ÍSS í Skautahöllinni

Seinni keppnisdagur Vormóts Skautasambands Íslands er í Skautahöllinni á Akureyri í dag. Dagskrá dagsins má sjá á myndinni hér að neðan.