Fara í efni
Knattspyrna

Fyrsta tap SA heima og SR tók forystuna

Guðrún Ásta Valentine fagnar markinu sem Magdalena Sulova skoraði í fyrsta leik liðanna í einvíginu. Í kvöld skoraði Guðrún Ásta eina mark SA. Mynd: Rakel Hinriksdóttir.

Lið Skautafélags Reykjavíkur tók forystuna í úrslitaeinvígi Toppdeildar kvenna í íshokkí með 2-1 sigri á liði Skautafélags Akureyrar í Skautahöllinni á Akureyri í dag. Þetta er eini leikurinn sem SA hefur tapað á heimavelli í vetur og aðeins þriðji tapleikurinn á leiktíðinni. Tvö af þessum þremur töpum eru hins vegar komin í úrslitakeppninni og SA því komið í þá stöðu að verða að vinna fjórðu viðureign liðanna í Reykjavík á sunnudag til að eiga möguleika á að vinna og endurheimta Íslandsmeistaratitilinn.

Ekki er þó víst að öll kurl séu eða verði komin til grafar þegar einvíginu sjálfu lýkur, því eins og áður hefur komið fram í fréttum akureyri.net gætu úrslitin ráðist fyrir dómstólum ÍSÍ, og verður jafnvel að teljast líklegt.

Hvað sem úrslitunum líður þá verður Akureyrarheimsókn SR í lengra lagi að þessu sinni því þó hópurinn hafi komist norður verður engin heimferð í kvöld vegna lokana á fjallvegum á leiðinni suður. Eitt af verkefnum gestgjafanna í dag var því að finna gistingu fyrir leikmenn SR, en þó vill svo skemmtilega til að nokkrar þeirra eru með sterk tengsl við Akureyri og geta einfaldlega farið „heim“ og gist þar hjá foreldrum eða jafnvel öfum og ömmum. Aldrei var þó ætlunin að sú gestrisni næði inn á svellið í Skautahöllinni.

Byrjað með látum

Leikir liðanna í vetur hafa ekki einkennst af mikilli markaskorun, frekar að markverðirnir hafi verið í aðalhlutverkum. Byrjun leiksins í dag gaf þó mögulega fyrirheit um annað því aðeins voru liðnar 40 sekúndur þegar Gunnborg Petra Jóhannsdóttir náði foyrstu fyrir gestina. SR-ingar lifðu þó ekki lengi í neinni Akureyrarparadís því rétt um þremur mínútum síðar jafnaði hin kornunga Guðrún Ásta Valentine leikinn. Skömmu seinna munaði svo minnstu að þær rauðu næðu forystunni.

Richard Hartmann, Slóvakinn sem tók við þjálfun SA-liðanna á miðju tímabili, stendur frammi fyrir erfiðu verkefni. Liðið verður að vinna næstu tvo leiki til að endurheimta Íslandsmeistaratitilinn, eða sætta sig við deildarmeistaratitilinn sem uppskeru tímabilsins ella. Mynd: Rakel Hinriksdóttir. 

SA-konur létu markið á fyrstu mínútu ekki slá sig út af laginu og voru sókndjarfari en gestirnir í fyrsta leikhlutanum, áttu sem dæmi 14 skot á mark á móti fjórum skotum gestanna.

  • 0-1 - Gunnborg Petra Jóhannsdóttir (00:40). 
    Gunnborg Petra stal pökknum af varnarmanni SA, komst ein inn fyrir, skautaði að markinu og skoraði. 
  • 1-1 - Guðrún Ásta Valentine (03:44). Stoðsending: Herborg Rut Geirsdóttir, Kolbrún Björnsdóttir. 
    Kolbrún Björnsdóttir var í baráttu um pökkinn fyrir aftan markið, kom honum út á Herborgu sem átti skot að marki, Julianna í marki SR varði, en Guðrún Ásta var mætt í frákastið og skoraði af öryggi.

Mörkin telja, ekki skotin

Sóknarþungi SA var áfram meiri en hjá gestunum, nóg af færum og skall oft hurð nærri hælum við mark SR. Reyndar einnig við mark SA, en ekki eins oft.

Fyrsti dómur leiksins kom þegar tæpar átta mínútur voru eftir af öðrum leikhlutanum, leikmaður SR með tvær mínútur, en leikmönnum SA gekk brösuglega að nýta sér liðsmuninn, munaði minnstu að gestirnir skoruðu einni færri. 

Það eru hins vegar ekki skotin sem telja, heldur hve oft pökkurinn fer í net andstæðingsins og það voru SR-ingar sem náðu aftur forystunni þegar rúmar fjórar mínútur voru eftir af leikhlutanum. Fjöldi skota þó heldur jafnari en í fyrstu lotunni, 14 frá SA á móti 11 skotum gestanna. Þetta reyndist hins vegar eina markið í öðrum leikhluta og SR því með forystuna fyrir lokaþriðjunginn.

  • 1-2 - Eleonor Greta Märta Ålstig (35:22). Stoðsending: Brynja Líf Þórarinsdóttir. 
    SR sótti að marki og eftir barning framan við markið þar sem Shawlee náði ekki til pökksins til að koma honum frá var það Eleonor sem kom honum í markið. 

Tíminn hljóp frá heimakonum

Snemma í þriðju lotunni fengu SA-konur aftur tækifæri einni fleiri eftir refsingu á SR, sóttu ákaft og meðal annars átti Silvía Rán Björgvinsdóttir skot í stöng. En aftur leið refsitíminn án þess að liðsmunurinn nýttist. Ekki leið á löngu þar til SR-ingar fengu refsingu þriðja sinni í leiknum og enn tækifæri fyrir SA að jafna, einni fleiri á ís. Það endaði þó með því að SR vann pökkinn og brunaði í sókn, sem endaði með broti og refsingu á SA. Minnstu munaði að SR næði inn þriðja markinu eftir að þær fengu sinn leikmann inn á og spiluðu einni fleiri í tæpa mínútu.

Þegar um ein og hálf mínúta var eftir af leiknum og gestirnir enn með forystuna fór Shawlee úr markinu og SA fjölgaði í sókninni. Minnstu munaði þó að SR næði að skora í autt markið, en bjargað á síðustu stundu. Lokamínúta leið síðan án þess að SA næði að jafna.

Þegar upp var staðið urðu skotin 39 á móti 25 skotum gestanna.

SA - SR 1-2 (1-1, 0-1, 0-0)

SA

Mörk/stoðsendingar: Guðrún Ásta Valentine 1/0, Herborg Rut Geirsdóttir 0/1, Kolbrún Björnsdóttir 0/1
Varin skot: Shawlee Gaudreault 23 af 25 (92%).
Refsingar: 2 mínútur.

SR

Mörk/stoðsendingar: Gunnborg Petra Jóhannsdóttir 1/0, Eleonor Greta Märta Ålstig 1/0, Brynja Líf Þórarinisdóttir 0/1.
Varin skot: Julianna Thomson 38 af 39 (97,4%).
Refsingar: 6 mínútur.

Leikskýrslan

Liðin

Númer 23 hjá SA eða fyrsti hjá SR

Fjórði leikur einvígisins er á dagskrá í Skautahöllinni í Laugardal á sunnudag, að því gefnu að SR-ingar komist heim og lið SA komist suður yfir heiðar. SR getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í fyrsta skipti í sögu kvennaliðs félagsins með sigri á sunnudag, en SA verður að vinna til að eiga möguleika á að landa titlinum á heimavelli í næstu viku.

Fjölnir hefur unnið titilinn undanfarin tvö ár en lið frá SA höfðu áður unnið hann 17 ár í röð og í 22 skipti af 23 áður en Fjölnir vann hann 2024. Skautafélag Reykjavíkur hefur hins vegar aldrei unnið titilinn í kvennaflokki, en getur með sigri á sunnudag tryggt báða Íslandsbikarana í Laugardalinn, kvenna og karla.