Fara í efni
Knattspyrna

Langur laugardagur hjá íþróttaáhugafólki

Af nógu er að taka fyrir íþróttaáhugafólk sem fylgist með og styður akureyrskt íþróttafólk og keppnislið. Á dagskránni er víðavangshlaup, handbolti, blak, fótbolti, körfubolti, íshokkí og pílukast. Víðavangshlaup og fimm kappleikir á Akureyri, en einnig tveir leikir og Íslandsmót félagsliða í pílukasti syðra.

  • Víðavangshlaup: Meistaramót Íslands í víðavangshlaupi fer fram í Kjarnaskógi í dag. Keppt verður bæði í einstaklingskeppni og sveitakeppni innan keppnisflokka mótsins. Þrír keppendur mynda sveit samkvæmt reglum FRÍ. Hlaupinn er hringur sem er 1,67 km að lengd. Allar upplýsingar um hlaupið er að finna á vef Frjálsíþróttasambands Íslands - sjá hér.
  • Handbolti: Eyjaheimsókn Handboltaþórsara er óvenjuleg að þessu sinni því þeir spiluðu leik gegn ÍBV í Olísdeildinni í gærkvöld og mæta svo ÍBV 2 í 16 liða úrslitum bikarkeppninar í dag. Sá leikur var upphaflega settur á viku fyrr, en Þórsarar vildu fækka Eyjaferðunum og taka báða leikina í sömu ferðinni.
  • Blak: Það er einnig tveggja leikja helgi hjá kvennaliði KA í blaki. Fyrstu heimaleikirnir á dagskránni hjá KA-konum í dag og á morgun þegar þær mæta liði HK/Ýmis. Hér er ekki um Íslandsmeistarana að ræða heldur lið númer tvö úr Kópavoginum. KA er á toppi deildarinnar með sex stig eftir tvo leiki, hefur unnið þá báða 3-0. Fjallað er um kvennalið KA og spjallað við þjálfarann í sér pistli á akureyri.net í dag. 
  • Fótbolti: Fram undan er spennuþrunginn dagur í karlafótboltanum. Tveimur umferðum er ólokið í neðri hluta Bestu deildar karla og orðið ljóst að annaðhvort Akureyrarliðanna mun falla. KA hefur örlögin í sínum höndum, en Þór verður að ná sér í að minnsta kosti þrjú stig í þeim leikjum sem liðið á eftir og um leið að treysta á að grannarnir tapi stigum. KA er í 10. sæti deildarinnar með 26 stig að loknum 25 umferðum, en Þór er í 11. sætinu, fallsæti, með 24 stig úr jafn mörgum leikjum. Þór mun ekki nægja að ná KA að stigum vegna óhagstæðrar markatölu heldur þarf liðið að enda með fleiri stig en KA til að forðast fall. Þór á annan heimaleikinn í röð og fær Stjörnuna í heimsókn norður, en á sama tíma sækir KA Val heim að Hlíðarenda. Úrslitin gætu ráðist í þessari umferð, það er ef Þór tapar og KA nær í stig.
  • Íshokkí: Það verður toppslagur í Skautahöllilnni á Akureyri í dag þegar SA Víkingar taka á móti Íslandsmeisturum SR. Lið Skautafélags Reykjavíkur hefur verið erfitt við að eiga nokkuð lengi og hefur raunar ekki tapað leik í deildar- eða úrslitakeppni á árinu 2026. Samtals hefur Reykjavíkurliðið unnið 14 leiki í röð í deildar- og úrslitakeppnum, þar af sjö gegn SA. SR tapaði síðast deildarleik 16. desember í fyrra, heimaleik gegn SA Víkingum, reyndar ekki fyrr en eftir maraþon leik, framlengingu og vítakeppni þar sem þurfti 18 víti til að skera úr um sigurvegara. Þremur dögum fyrr hafði SA einnig unnið SR, 5-4, en í framlengingu í það skiptið. Síðasti leikur sem SR tapaði í deildarkeppninni, í venjulegum leiktíma, var gegn SA í Skautahöllinni á Akureyri 15. nóvember í fyrra, en sá leikur endaði 5-4 fyrir SA. Stuðningsfólki SA hlýtur því að finnast kominn tími á að stöðva sigurgöngu Reykjavíkurliðsins og tryggja sigur á laugardaginn.
    Hokkíleikurinn verður ekki bara hokkíleikur því SA Víkingar munu spila í bleikum treyjum og mun ágóði af leiknum renna til Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis. Aðgangseyrir verður aðeins 100 krónur, en að sjálfsögðu tekið við frjálsum framlögum umfram það, eins og fyrirliðinn og aðstoðarfyrirliðinn komu inn á í myndbandi á Facebook-síðu hokkídeildarinnar - sjá hér. Að auki verður keppt um bleikar treyjur í pökkakasti og happdrætti. Fyrir fólk sem vill styrkja, en kemst ekki í Skautahöllina í dag, er mögulegt að millifæra á söfnunarreikning 0162-05-261155 kt. 630295-2709. Íshokkísambandið hefur ákveðið að bjóða upp á frítt streymi frá leiknum á streymisrás sinni. Gestir þurfa að skrá sig inn á síðuna (það er frítt) og svo er leikurinn opin fyrir innan.
  • Handbolti: Handboltakonum Akureyrar hefur ekki gengið sem best í upphafi Olísdeildarinnar í haust. KA/Þór tekur á móti Stjörnunni á  í dag og mætast þar tvö neðstu lið deildarinnar. KA/Þór er enn án stiga að loknum fimm umferðum, en Stjarnan er með tvö stig í sætinu fyrir ofan. KA/Þór tapaði fyrir Gróttu á útivelli í síðustu umferð, en Stjarnan tapaði heimaleik gegn HK. Akureyrarliðið þarf sárlega á stigum að halda og vonandi koma þau í dag.
  • Pílukast: Íslandsmót félagsliða í pílukasti fer fram í Reykjavík í dag og á morgun. Keppt er í einmenningi, tvímenningi og liðakeppni. Hvert félag má senda tvö karlalið og eitt kvennalið. Fjórir spilarar eru í hverju liði.

Meistaramót Íslands í víðavangshlaupi fer fram í Kjarnaskógi í dag. Keppt er um Íslandsmeistaratitla í öllum aldursflokkum barna og fullorðinna, en mótið er jafnframt öllum opið og hlauparar af öllum getustigum hvattir til að taka þátt. Hlaupinn er hringur sem er 1,67 km að lengd. Allar upplýsingar um hlaupið er að finna á vef Frjálsíþróttasambands Íslands - sjá hér.

  • Víðavangshlaup, Meistaramót Íslands
    Kjarnaskógur kl. 10 og áfram
    Almennur flokkur, 5 km, kl. 10
    Karlar og konur í eldri aldursflokkum, 5 km, kl. 10
    12 ára og yngri, 1,7 km, kl. 10:35
    13-14 ára, 3,4 km, kl. 10:50
    15-17 ára, 5 km, kl. 11:15
    18-19 ára, 5 km, kl. 11:15
    20 ára og eldri, 10 km, 11:45

Fyrstu heimaleikir kvennaliðs KA í blaki eru á dagskrá í dag og á morgun þegar ungmennalið HK/Ýmis mætir norður. Fjallað er um kvennalið KA og spjallað við þjálfarann í sér pistli á akureyri.net í dag. 

  • Blak
    Unbroken-deild kvenna
    KA-heimilið kl. 13:30
    KA - HK/Ýmir

Örlög gætu ráðist í neðri hluta Bestu deildar karla í knattspyrnu í dag, en spennan gæti líka haldið áfram og úrslitin ekki ráðist fyrr en í lokaumferðinni eftir viku. Þór tekur á móti Stjörnunni í dag í síðasta heimaleik tímabilsins og þarf á sigri eða að minnsta kosti stigi að halda í erfiðri botnbaráttu, ásamt því að vonast eftir því að grannarnir misstígi sig.

  • Fótbolti
    Besta deild karla, neðri hluti, 26. umferð
    Þórsvöllur (VÍS-völlurinn, gervigras á Ásnum) kl. 14
    Þór - Stjarnan

KA sækir Val heim og má segja að KA-liðið hafi örlögin í sínum höndum. Ekki þó víst að örlögin ráðist þessa helgina. Það fer eftir úrslitum í leik Þórs og Stjörnunnar.

  • Fótbolti
    Besta deild karla, neðri hluti, 26. umferð
    Valsvöllur (N1 völlurinn að Hlíðarenda) kl. 13 (breytt tímasetning)
    Valur - KA

Leikur í 32 liða úrslitum bikarkeppni karla í körfubolta á dagskránni í Íþróttahöllinni í dag. Þórsarar með heimaleik gegn úrvalsdeildarliði Sindra.

  • Körfubolti
    Íþróttahöllin á Akureyri kl. 16
    Þór - Sindri

Seinni leikur Þórsara í tveggja leikja heimsókn til Vestmannaeyja er á dagskrá í dag. Bikarleikur gegn ÍBV 2 í 16 liða úrslitum.

  • Handbolti
    Powerade-bikarinn, 16 liða úrslit
    Íþróttamiðstöðin í Vestmannaeyjum kl. 16:30
    ÍBV 2 - Þór

Alltaf hörkuslagir þegar SA Víkingar og lið Skautafélags Akureyrar mætast. Bleikur leikur á dagskránni eins og fjallað hefur verið um hér á akureyri.net. SA Víkingar spila í bleikri treyju og er um svokallaðan hundrað krónu leik að ræða þar sem aðgangseyrir er 100 krónur, en að auki tekið við frjálsum framlögum. Þá verður boðið upp á pökkakast og happdrætti þar sem keppt er um bleikar verðlaunatreyjur. Allur ágóði af leiknum rennur til Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis.

  • Íshokkí
    Toppdeild karla
    Skautahöllin á Akureyri kl. 16:45
    SA - SR

Tvö neðstu lið Olísdeildar kvenna mætast í sjöttu umferð deildarinnar í KA-heimilinu í dag og þarf Akureyrarliðið sárlega á því að ná sér í fyrstu stig haustsins.

  • Handbolti
    Olísdeild kvenna, 6. umferð
    KA-heimilið kl. 17
    KA/Þór - Stjarnan

Þrjú lið frá píludeild Þórs takast á við kollega sína úr öðrum pílufélögum landsina á Íslandsmóti félagsliða sem fram í Reykjavík í dag og á morgun, tvö karlalið og eitt kvennalið. Keppt er í einmenningi, tvímenningi og liðakeppni. Fjórir spilarar eru í hverju liði. Alls keppa 22 karlalið og sex kvennalið í mótinu. Nánari upplýsingar um mótið má finna á vef Íslenska pílukastsambandsins - dart.is.

  • Íslandsmót félagsliða
    Bullseye, Reykjavík

Streymt er frá þremur viðureignum samtímis á YouTube-rásinni Live Darts Iceland og hægt að fylgjast með úrslitum og stöðu á vefnum dartconnect.com.