Fara í efni
KA/Þór

Þór/KA: Arna Sif best – Karen Hulda efnilegust

Arna Sif Ásgrímsdóttir, besti leikmaður Þórs/KA á tímabilinu, og Karen Hulda Hrafnsdóttir, efnilegasti leikmaðurinn með verðlaunagripina á lokahófi Þórs/KA í gærkvöld. Mynd: Ármann Hinrik.

Arna Sif Ásgrímsdóttir sópaði til sín þrennum verðlaunum á lokahófi Þórs/KA sem fram fór í gærkvöld. Arna Sif var valin besti leikmaður liðsins á tímabilinu, einnig valin leikmaður leikmannanna og hlaut Kollubikarinn sem stjórn Þórs/KA veitir í minningu Kolbrúnar Jónsdóttur. Hin bráðefnilega 17 ára Karen Hulda Hrafnsdóttir var valin efnilegust.

Í frétt á vef félagsins er farið yfir verðlaunaveitingarnar. Þar kemur meðal annars fram að Arna Sif eigi að baki 218 leiki í efstu deild með Þór/KA og sé þar með komin upp í 4. sætið yfir þær knattspyrnukonur sem hafa spilað flesta leiki í efstu deild fyrir sama félag. Víðir Sigurðsson fjallaði um þær leikjahæstu á þeim lista í pistli á Facebook fyrr í sumar, sem síðan var birtur á akureyri.net - sjá hér.

Arna Sif Ásgrímsdóttir með verðlaunagripina á lokahófi Þórs/KA í gærkvöld. Mynd: Ármann Hinrik.

Samanlagt á Arna Sif að baki 317 leiki í efstu deild á Íslandi, Ítalíu og í Svíþjóð; 218 fyrir Þór/KA, 75 fyrir Val, 19 fyrir Göteborgs/Kopparberg í Svíþjóð og fimm með Verona á Ítalíu. Hún hefur samanlagt spilað 447 meistaraflokksleiki í deildakeppnum í þremur löndum, deildabikarkeppni, bikarkeppni, meistarakeppni og Evrópukeppnum. Fyrsta meistaraflokksleikinn fyrir Þór/KA spilaði Arna Sif í mars 2007, þá 14 ára og 217 daga gömul. 

Karen Hulda Hrafnsdóttir valin efnilegust

Hin 17 ára og bráðefnilega Karen Hulda Hrafnsdóttir hefur heillað knattspyrnuáhugafólk í sumar með góðri og mjög vaxandi frammistöðu í leikjum liðsins. Eftir að Hulda Björg Hannesdóttir, fyrirliði Þórs/KA, varð fyrir meiðslum í öðrum leik liðsins á tímabilinu kom Karen Hulda inn í liðið og spilaði alla leiki liðsins í deildinni eftir það. Hún þreytti þar frumraun sína í efstu deild og skoraði að auki sitt fyrsta mark í efstu deild í sigri á Fram fyrr í sumar. Karen Hulda var nýorðin 17 ára þegar hún kom inn í byrjunarliðið og var fljót að sanna að þar átti hún skilið sæti. Hún hafði enda góðan kennara sér við hlið í hinni miðvarðarstöðunni, stöðu sem hún hafði reyndar ekki spilað í yngri flokkunum því þar var hún miðjumaður.

Karen Hulda Hrafnsdóttir með verðlaunagripinn sem efnilegasti leikmaðurinn hjá Þór/KA. Mynd: Ármann Hinrik.

Arna Sif hlaut Kollubikarinn öðru sinni

Kollubikarinn, sem Arna Sif hlaut nú í annað sinn, er veittur leikmanni hjá Þór/KA í minningu Kolbrúnar Jónsdóttur, sem starfaði um árabil í stjórn Þórs/KA. Kollubikarinn hefur verið veittur árlega frá haustinu 2016, en við val á þeim leikmanni sem hlýtur Kollubikarinn eru hafðir til hliðsjónar eiginleikar sem prýddu Kollu sjálfa, áræðni, harka og dugnaður, svo einhverjir séu nefndir. 

Arna Sif Ásgrímsdóttir og Ágústa Kristinsdóttir við afhendingu Kollubikarsins á lokahófi Þórs/KA í gærkvöld. Mynd: Ármann Hinrik.

Við afhendingu Kollubikarsins sagði dóttir Kolbrúnar, Ágústa Kristinsdóttir, meðal annars:

Öll góð lið þurfa svona leikmenn. Leikmenn sem alltaf mæta, berjast, taka ábyrgð og eru tilbúnir að gera aðeins meira fyrir liðið sitt. Sú sem fær Kollubikarinn í ár hefur alla þessa eiginleika. Hún er hörð, dugleg og ákveðin og gefur alltaf allt sem hún á fyrir liðið. Hún er algjör baráttujaxl, gefst ekki upp og er alltaf tilbúin að leggja aðeins meira á sig. Hún er frábær leiðtogi og fyrirmynd, bæði innan og utan vallar. Hún bakkar liðsfélaga sína upp, tekur ábyrgð þegar á reynir og setur liðið alltaf í fyrsta sæti. Það hefur kannski sjaldan sést jafn vel og á þessu tímabili. Þegar hlutirnir hafa ekki gengið eins og þið hefðu viljað hefur hún haldið áfram að berjast og draga vagninn.

Það er mikið hjarta í henni og það fer ekkert á milli mála hversu mikið Þór/KA þýðir fyrir hana.