„Montrétturinn“ kominn aftur á Brekkuna
Gulir og bláir KA-menn heimsóttu Þórsara í Höllina í kvöld í 11. umferð efstu deildar karla í handbolta, Olísdeildinni, og lögðu þá að velli með 35 mörkum gegn 30, fyrir fullu húsi áhorfenda. Það voru ekki einungis stigin tvö sem KA hafði með sér heim, heldur náðu þeir „montréttinum“ sem Þórsarar höfðu hrifsað til sín með sigri í fyrri viðureign liðanna í haust.
Fyrri hálfleikur var jafn og spennandi og liðin voru með forystuna á víxl - nema þegar leikar stóðu jafnir, sem gerðist 14 sinnum. KA náði reyndar tveggja marka forskoti um tíma snemma leiks en Þórsarar svöruðu því með þremur mörkum. Mikkel Bak Scheumann Jensen skoraði síðasta mark hálfleiksins fyrir Þór með skemmtilegu gegnumbroti og Þórsarar höfðu eins marks forskot í leikhléi, 17:16.
- Að afloknum fyrri hálfleiknum er gott að halda til haga nokkrum tölfræðiatriðum, til að bera saman við tölfræðina í leikslok. Markaskorun í fyrri hálfleik dreifðist nokkuð vel. Bertram Simonsen, William Skovager og Jóhann Geir Sævarsson voru með 3 mörk hvor fyrir Þór og Dagur Árni Heimisson og Bjarni Ófeigur Valdimarsson með 4 mörk hvor fyrir KA. Nikola Radovanovic varði 6 skot í marki Þórs og Ágúst Elí Björgvinsson 7 skot fyrir KA.
KA náði undirtökunum eftir hlé
KA byrjaði seinni hálfleikinn með áhlaupi og skoraði 4 af fyrstu 5 mörkum seinni hálfleiks. Staðan allt í einu orðin 20:18 þeim í vil og þeir virtust hreinlega koma mun ákveðnari inn í seinni hálfleikinn en Þór. Munurinn í leiknum varð í fyrsta sinn þrjú mörk eftir tæplega sjö mínútur, þegar Dagur Gautason skoraði sirkusmark og staðan 22:19 fyrir KA. Stuðningsmennirnir tóku vel við sér og voru þó ekki lágværir fyrir.
En Þórsarar eru þekktir fyrir ódrepandi seiglu og þótt KA hefði komist fjórum mörkum yfir skömmu síðar, 25:21, tókst þeim að minnka muninn í 25:24 og þá voru þrettán mínútur til leiksloka. Þeir þurftu hins vegar alltaf að hafa mun meira fyrir mörkunum en KA og voru eiginlega aldrei líklegir til að jafna. KA-vörnin var föst fyrir og á bak við hana var Bruno Bernat í banastuði á meðan markverðir Þórs náðu sér ekki á strik. KA seig aftur framúr og herti tökin jafnt og þétt og Þórsarar komust lítið áleiðis. Munurinn var þó ekki nema tvö mörk þegar fjórar mínútur voru eftir en forystan var þó aldrei í hættu. Lokatölur 35:30, sem er mesti munur sem var á liðunum í leiknum.
- Þau tölfræðiatriði sem vekja hvað mesta athygli að leik loknum, í samanburði við tölurnar eftir fyrri hálfleik er að Bruno Bernat, sem kom í mark KA í seinni hálfleik, varði 10 skot og þar af 2 víti. Nikola Radovanovic náði sér ekki á strik eftir hlé og varði ekki skot og Tristan Ylur Guðjónsson aðeins eitt, eftir að hann kom inn á. Dagur Árni Heimisson bætti síðan 8 mörkum við þau 4 sem hann skoraði fyrir hlé og endaði í 12 mörkum.
Markvarslan og Dagur Árni gerðu útslagið fyrir KA
Þórsurum gekk afar illa að ráða við Dag Árna, sem gerði mörk í öllum regnbogans litum. Hann hefur ótrúlegt vald á knettinum og mörg markanna skoraði hann með skemmtilegum snúningi. Bjarni Ófeigur endaði í 7 mörkum og að auki gáfu þeir 6 stoðsendingar hvor. Jóhann Geir Sævarsson nýtti færi sín vel í liði Þórs og Mikkel Bak Scheumann Jensen skoraði skemmtileg mörk en skotnýting annarra var ekki góð. KA-vörnin var lengst af afar öflug og Þórsarar þurftu oft að klára sóknirnar úr lélegum færum og þá var eftirleikurinn auðveldur fyrir markverðina.
„Vorum stórkostlegir í seinni hálfleik“
Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA, var að vonum kampakátur að leik loknum. „Við vorum einfaldlega stórkostlegir í seinni hálfleik. Það var bara þannig,“ sagði Andri þegar hann var spurður hvers vegna KA hefði unnið leikinn. „Í seinni hálfleik náðum við mjög góðum tökum á spennustiginu og náðum að tengja saman vörn og markvörslu. Bruno kom frábær inn. Svo náðum við taktinum í sókninni, sem okkur vantaði á köflum í fyrri hálfleik,“ sagði Andri. „Þetta var bara alvöru frammistaða og gaman að gera þetta með fólkinu okkar og þvílík stemning og umgjörð hérna í húsinu,“ sagði Andri. Hann sagði að ekkert í leik Þórs hefði komið sér á óvart. „Ég get ekki sagt það af því að liðin þekkja hvort annað mjög vel,“ sagði Andri brosandi. „Þau eru búin að spila marga leiki núna á rúmu ári og liðin gjörþekkja hvort annað. Auðvitað breyttist takturinn í Þórsliðinu mikið með með Dönunum og þetta er bara þrusulið sem þeir eru með. Þeir ættu að vera með fleiri stig,“ sagði Andri Snær um andstæðinginn.
„Verðum svekktir í kvöld“
Þórður Tandri Ágústsson, leikmaður Þórs, tók í sama streng og Andri Snær varðandi byrjunina á seinni hálfleik. „Við bara byrjuðum illa í seinni hálfleik og þeir héldu út,“ sagði Þórður. „En þessir leikir geta alveg dottið báðum megin, við vitum alveg hvernig þeir spila,“ bætti hann við og sagði að þeir myndu ekki svekkja sig lengi á þessum úrslitum. „Við verðum svekktir í kvöld en svo er það bara fullur fókus á að einbeita okkur að næsta verkefni,“ sagði Þórður Tandri en næsta verkefni er heimaleikur gegn Fram á fimmtudagskvöldið. Þórður segir að Þórsarar séu ekki sáttir við gengi liðsins í vetur en þeir horfi fram á við. „Við erum ekki nógu sáttir með sjálfa okkur. Við byrjuðum mótið ágætlega en svo höfum við átt í erfiðleikum með að finna sigrana. En við breytum því,“ sagði Þórður Tandri Ágústsson.
Eftir leikinn er KA í þriðja sæti deildarinnar með 16 stig, á eftir Hafnarfjarðarliðunum Haukum og FH. Þórsarar sitja hins vegar í 10.-11. sæti með 6 stig og þurfa að fara að hala inn stig til að missa ekki liðin fyrir ofan sig frá sér. Tólfta umferðin er síðan handan við hornið og bæði Akureyrarliðin eiga heimaleik á fimmtudagskvöldið. Þór fær Fram í heimsókn og KA mætir HK.
Mörk Þórs: Hafþór Már Vignisson 5, Jóhann Geir Sævarsson 5, William Skovager 5 (2 víti), Bertram Simonsen 4, Mikkel Bak Scheumann Jensen 4, Hákon Ingi Halldórsson 2, Oddur Gretarsson 2, Þórður Tandri Ágústsson 2, Sigurður Ringsted Sigurðsson 1.
Varin skot: Nikola Radovanovic 6, Tristan Ylur Guðjónsson 1.
Mörk KA: Dagur Árni Heimisson 12 (4 víti), Bjarni Ófeigur Valdimarsson 7, Dagur Gautason 5, Einar Birgir Stefánsson 4, Jens Bragi Bergþórsson 4, Morten Linder 2, Andri Freyr Friðriksson 1.
Varin skot: Bruno Bernat 10 (2 víti), Ágúst Elí Björgvinsson 7.