Fara í efni
KA/Þór

Magnaður sigur Þórs á Aftureldingu

Þórsarinn Nikola Radovanovic lék mjög vel í markinu gegn Aftureldingu í kvöld. Hér freistar hann þess að verja víti í fyrri deildarleik liðanna í vetur. Myndir: Ármann Hinrik

Þórsarar gerðu góða ferð í Mosfellsbæ þegar þeir heimsóttu Aftureldingu í 21. og næstsíðustu umferð efstu deildar karla í handknattleik. Eftir að Afturelding hafði leitt leikinn nánast allan tímann náðu Þórsarar að skora þrjú síðustu mörkin á síðustu 90 sekúndunum og tryggja sér ótrúlegan 26:24 sigur. Leikurinn var afar mikilvægur fyrir bæði lið; Þórsarar þurftu sigur til að halda lífi í vonum sínum um sæti í úrslitakeppninni og Afturelding er í harðri baráttu við ÍBV og KA um 4. sætið í deildinni, sem gefur heimavallarrétt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Úrslitin í kvöld þýða að Þór á enn möguleika á 8. sætinu en vonir Aftureldingar um 4. sætið eru nánast að engu orðnar.

Leikurinn fór rólega af stað og lítið skorað framan af. Eftir um 10 mínútna leik var staðan 3:3 og þá höfðu Þórsarar fengið þrjár tveggja mínútna brottvísanir, þar af Oddur Gretarsson tvær. Leikurinn var samt áfram í járnum, þótt markvarslan hjá Mosfellingum væri talsvert meiri en hjá Þór. Heimamenn gerðu hins vegar tvö síðustu mörkin á lokamínútu fyrri hálfleiks og leiddu 15:13 í leikhléi.

Hafþór Már Vignisson, til vinstri, og Brynjar Hólm Grétarsson léku báðir vel í sókninni í kvöld. Myndir: Ármann Hinrik.

Nikola hrökk í gang í markinu í seinni hálfleik

Afturelding byrjaði seinni hálfleikinn af krafti og eftir fjögurra mínútna leik var staðan orðin 19:15. Þórsarar voru þó ekki á þeim buxunum að gefast upp, Nikola hrökk í gang í markinu og Þór náði að jafna í 21:21. Þórsarar gátu síðan komist yfir þegar þeir fengu vítakast. Heppnin var ekki með þeim; Oddur lét verja frá sér og Afturelding fór í sókn, fengu vítakast sem þeir nýttu. Stuttu síðar skoraði Afturelding aftur og þá bjuggust margir við að heimamenn myndu klára leikinn á síðustu 10 mínútunum. En það var öðru nær. Þórsarar neituðu að gefast upp og á næstu sjö mínútum skoruðu þeir tvö mörk án þess að Afturelding næði að svara fyrir sig.

Lokakaflinn var síðan ótrúlegur. Bæði lið skoruðu úr vítakasti og staðan var því 24:24 þegar 30 sekúndur voru eftir af leiknum og Afturelding með boltann. Brynjar Hólm Grétarsson stal þá boltanum, brunaði fram og kom Þór yfir í fyrsta sinn síðan í stöðunni 11:10. Og ekki nóg með það heldur náðu Þórsarar boltanum aftur og Hafþór Már Vignisson tryggði óvæntan 26:24 sigur með marki í lokin.

Risaslagur Þórs og KA í síðustu umferð

Sigur Þórsara þýðir að liðið er aðeins einu stigi á eftir HK sem situr í 8. og síðasta sætinu sem gefur sæti í úrslitakeppninni. Í síðustu umferð deildarinnar mætast erkifjendurnir Þór og KA og þar dugar ekkert annað en sigur fyrir bæði lið. Þór verður að vinna til að eiga möguleika á að skáka HK í 8. sætinu og KA, sem situr í 5. sæti, þarf að vinna leikinn til að eiga möguleika á að ná 4. sætinu af ÍBV.

Mörk Þórs: Brynjar Hólm Grétarsson 8, Hafþór Már Vignisson 6, Þórður Tandri Ágústsson 3, Oddur Gretarsson 3 (2 víti), Arnór Þorri Þorsteinsson 2 (1 víti), Hákon Ingi Halldórsson 2, Kári Kristján Kristjánsson 1, Þormar Sigurðsson 1.

Varin skot: Nikola Radovanovic 14 (1 víti), 37,8% – Tristan Ylur Guðjónsson 0.

Mörk Aftureldingar: Ihor Kopyshynskyi 7 (5 víti), Harri Halldórsson 6, Oscar Sven Leithoff Lykke 4, Árni Bragi Eyjólfsson 2 (1 víti), Ágúst Ingi Óskarsson 2, Kristján Ottó Hjálmsson 2, Haukur Guðmundsson 1.

Varin skot: Einar Baldvin Baldvinsson 10 (1 víti), 33,3% – Sigurjón Bragi Atlason 2 (1 víti), 33,3%.

Öll tölfræði leiksins hjá HBStatz

Staðan í Olísdeild karla