Fara í efni
KA/Þór

KA-menn töpuðu heima fyrir FH-ingum

Bjarni Ófeigur Valdimarsson gefur félögum sínum góð ráð af varamannabekknum í kvöld. Lengst til hægri situr Einar Rafn Eiðsson. Vinstra megin eru Jens Bragi Bergþórsson og Patrekur Stefánsson og Daníel Matthíasson (18) skundar þarna út af eftir að hafa staðið vaktina í vörn. Mynd: Skapti Hallgrímsson

KA-menn lutu í lægra haldi fyrir FH-ingum á heimavelli í kvöld í efstu deild Íslandsmótsins í handbolta, Olísdeildinni. Eftir að staðan í hálfleik var 14:12 fyrir gestina urðu lokatölur 30:25. Sigur FH-inga var sanngjarn, þeir virkuðu ferskari og KA má illa við því að geta lítið notað máttarstólpann Bjarna Ófeig Valdimarsson. KA-strákarnir léku vel lungann úr fyrri hálfleik en mistök í sókninni voru of mörg í síðari hlutanum til að eiga raunhæfan möguleika á sigri gegn jafn góðu liði og FH.

Eftir leiki kvöldsins er ljóst að KA-menn verða að vinna Þórsara í bæjarslagnum á fimmtudaginn, í lokaumferð deildarinnar, til að eiga möguleika á 4. sæti í úrslitakeppninni, sætinu sem tryggir heimaleikjarétt; fyrsta leik, og oddaleik ef með þarf, á heimavelli gegn liðum sem enduðu neðar. KA verður reyndar einnig að treysta á að ÍBV nái ekki í stig á heimavelli gegn Val. ÍBV er einu stigi fyrir ofan KA og fari svo að liðin verði jöfn telst ÍBV ofar: KA vann viðureign liðanna á heimavelli með eins marks mun en ÍBV sigraði KA í Eyjum með tveimur mörkum. Mjótt á munum þar!

Þórsarar unnu Aftureldingu á útivelli í kvöld og eiga enn möguleika á sæti í úrslitakeppninni. Til þess verða þeir að vinna KA þannig að allt er undir í Höllinni. Bæði lið verða í raun lífsnauðsynlega að vinna, það hefur hins vegar aldrei gerst – og mun aldrei gerast – þannig að óhætt er að spá sannkallaðri ögurstund!

Daníel Matthíasson og Einar Birgir Stefánsson voru fílhraustir í KA-vörninni eins og svo oft áður en þarna sleppur Gunnar Kári Bragason í gegn. Mynd: Þórir Tryggvason

KA-strákarnir byrjuðu af krafti í kvöld og voru komnir þremur mörkum yfir rúmar níu mínútur, 6:3. Gestirnir héldu ró sinni þrátt fyrir það, minnkuðu muninn hægt og bítandi og komust yfir þegar rúmar 25 mín. voru liðnar – 11:10 – í fyrsta skipti síðan þeir gerðu fyrsta mark leiksins.

Stórskyttan Bjarni Ófeigur Valdimarsson hefur glímt við meiðsli á hendi og sat sem fastast á bekk varamanna í fyrri hálfleik, þar til níu sekúndur voru eftir. KA fékk þá aukakast en tók leikhlé, að því loknu fékk Bjarni Ófeigur boltann og stökk upp en FH-ingur náði að hrifsa af honum boltann og skora yfir endilangan völlinn í tómt markið á síðasta sekúndubrotinu.

Bjarni Ófeigur hóf seinni hálfleikinn og átti þegar í stað tvær línusendingar en hvorugt færið nýttist illu heilli. Hann virðist eiga erfitt með að skjóta á markið – gerði það a.m.k. ekki, en mikil ógn stafar þrátt fyrir það af þessum magnaða leikmanni. Hann hefur frábært auga fyrir spili og er gjarn á að mata samherjana með laglegum sendingum. Norðmaðurinn Morten Linde var fjarri góðu gamni í dag eins og undanfarið eftir að hann fór úr axlarlið gegn Val. Það er því aldeilis ekki eins og lánið leiki við KA-strákana og til að bæta gráu ofan á svart er Einar Rafn Eiðsson töluvert frá sínu besta eftir  að hann lagðist undir hnífinn vegna meiðsla í fyrra. Einar Rafn hefur verið markakóngur KA síðustu ár og er liðinu gríðarlega dýrmætur.

FH-ingar slógu KA-menn út af laginu í fyrri hluta seinni hálfleiksins; FH hafði gert fimm mörk áður en KA komst á blað. Einar Rafn gerði fyrsta mark KA eftir hlé úr víti þegar rúmar sjö mínútur voru liðnar. Staðan þá 19:13 og útlitið dökkt en KA-menn eru þekktir fyrir að gefast ekki upp. Þeir reyndu hvað þeir gátu, minnkuðu muninn í þrjú mörk, 21:18, þegar 13 og hálf mín. var liðin af seinni hálftímanum en nær komust þeir ekki.

Mörk KA: Dagur Gautason 6 (1 víti), Einar Birgir Stefánsson 4, Einar Rafn Eiðsson 3, Patrekur Stefánsson 3, Arnór Ísak Haddsson 2, Giorgi Arvelodi Dikhaminjia 2, Magnús Dagur Jónatansson 2, Jens Bragi Bergþórsson 2, Daði Jónsson 1.

Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 14 (34,1%), Bruno Bernat 0.

Mörk FH: Símon Michael Guðjónsson 7 (3 víti), Ómar Darri Sigurgeirsson 7, Garðar Ingi Sindrason 5, Birgir Már Birgisson 4, Einar Örn Sindrason 2, Kristófer Máni Jónasson 2, Gunnar Kári Bragason 1, Ingvar Dagur Gunnarsson 1, Ágúst Birgisson 1.

Varin skot: Jón Þórarinn Þorsteinsson 10 (34,5%), Daníel Freyr Andrésson 5 (45,5%).

Öll tölfræði leiksins hjá HBStatz

Staðan í Olísdeild karla