Fara í efni
KA/Þór

Handbolti: Þór gaf eftir í lokin gegn Val

Þórður Tandri Ágústsson, sem hér rífur sig lausan í viðureign KA og Þórs, átti góðan leik gegn Val og skoraði 6 mörk úr jafnmörgum skotum. Mynd: Ármann Hinrik.

Þrátt fyrir hetjulega baráttu Þórsara í seinni hálfleik urðu þeir að játa sig sigraða að lokum í viðureigninni við Valsmenn í efstu deild karla í handknattleik í gærkvöld. Lokatölur urðu 40:35 heimamönnum í vil, eftir að staðan hafði verið jöfn undir lok leiksins.

Leikir Vals það sem af er hausti hafa verið miklir markaleikir en þrátt fyrir að skora mikið hefur liðið yfirleitt fengið fleiri mörk á sig og uppskeran í stigasöfnun verið undir væntingum. En góður sigur þeirra á sterku dönsku liði í Evrópudeildinni í vikunni hefur kannski eflt sjálfstraustið því þegar Þórsarar voru búnir að vinna upp forskot heimamanna í leiknum í gær og allt gat gerst, þá skelltu Valsarar í lás og kláruðu leikinn sannfærandi.

Fram í miðjan fyrri hálfleik var jafnt á með liðunum en í stöðunni 10:10 skoraði Valur fjögur mörk í röð og náði þægilegu forskoti. Munurinn varð mestur 6 mörk en þegar flautað var til leikhlés munaði 5 mörkum; staðan 23:18 Valsmönnum í vil. Mestu munaði um að Björgvin Páll í Valsmarkinu hafði varið ein 10 skot í hálfleiknum en markverðir Þórsara fundu sig ekki. Og líklega sakna Þórsarar Odds Gretarssonar, sem var fjarri góðu gamni annan leikinn í röð.

Þórsarar ná að jafna leikinn

Í seinni hálfleik náðu Þórsarar hægt og sígandi að minnka muninn en í hvert sinn sem hann var kominn niður í 1-2 mörk tóku Valsmenn við sér og juku hann á ný. En þegar níu mínútur voru til leiksloka jafnaði Þórður Tandri Ágústsson leikinn í 33:33, með sínu sjötta marki úr jafnmörgum skotum. Aftur var jafnt í 34:34 en Valsarar komust síðan aftur tveimur mörkum yfir. Mikkel Bak Scheumann Jensen minnkaði muninn í 36:35 þegar fimm mínútur voru til leiksloka en nær komust þeir ekki. Valur bætti við fjórum mörkum á lokakaflanum, án þess að Þór næði að svara fyrir sig, og meðal annars fór vítakast forgörðum. Sannarlega svekkjandi endir á leik sem Þórsarar höfðu unnið sig inn í með mikilli seiglu og baráttu en heimamenn voru bara sterkari í lokin.

Þórsarar sitja í 6.-8. sæti deildarinnar með 4 stig úr 5 leikjum og mæta Eyjamönnum á útivelli í næstu umferð, laugardaginn 17. október, en ÍBV er líka með 4 stig.

Mörk Þórs: Bertram Simonsen 8, Þórður Tandri Ágústsson 6, Hákon Ingi Halldórsson 5 (2 víti), Mikkel Bak Scheumann Jensen 5, Oliver Möller Christensen 4, Hafþór Már Vignisson 3, Guðmundur Ari Jónsson 2, Brynjar Hólm Grétarsson 1, William Skovager 1.

Varin skot: Tristan Ylur Guðjónsson 6, Nikola Radovanovic 4.

Mörk Vals: Gunnar Róbertsson 11 (3 víti), Arnór Snær Óskarsson 8, Bjarni í Selvindi 6, Tjörvi Týr Gíslason 5, Allan Norðberg 4, Jón Ásgeir Eyjólfsson 3, Bessi Teitsson 2, Björgvin Páll Gústavsson 1.

Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 14, Jens Sigurðarson 1.