Blaklið KA hefja leik í Íslandsmótinu
Tveimur leikjum er lokið í meistaraflokki karla og kvenna hjá KA-liðunum í blaki og einn bikar þegar kominn í hús. Kvennalið KA varð á dögunum meistari meistaranna með 3-1 sigri á liði HK, en karlaliðið mátti sjá á eftir bikarnum í hendur Hamars úr Hveragerði eftir 2-3 tap. En nú er komið að Íslandsmótinu, Unbroken-deildunum.
Blakliðin bæði halda suður í dag og sækja Þróttara heim í Laugardalshöllina í fyrstu leikjum Íslandsmótsins. Andstæðingar kvennaliðsins eru raunar blanda úr tveimur félögum, en liðið keppir undir merkjum Þróttar Reykjavík og Blakfélags Hafnarfjarðar.
Karlaliðin mætast á undan og hefst leikur þeirra kl. 18, en konurnar hefja leik kl. 20.
- Blak
Unbroken-deild karla
Laugardalshöllin kl. 18
Þróttur R. - KA
Liðin í Unbroken-deild karla: Afturelding, Hamar, HK, KA, Þróttur Fjarðabyggð, Þróttur Reykjavík, Vestri.
- Blak
Unbroken-deild kvenna
Laugardalshöllin kl. 20
Þróttur R./Blakfélag Hfj. - KA
Liðin í Unbroken-deild kvenna: Afturelding, HK, HK Ýmir, KA, Þróttur Fjarðabyggð, Þróttur R./Blakfélag Hfj., Völsungur.
Paula del Olmo ráðin yfirþjálfari og verkefnastjóri
Blakdeild KA tilkynnti um ráðningu í starf yfirþjálfara yngri flokka og verkefnastjóra deildarinnar á dögunum. Paula del Olmo hefur verið ráðin í starfið og segir í tilkynningu deildarinnar að þar sé um að ræða „enn eitt stóra skrefið hjá blakdeild félagsins í átt að metnaðarfyllra og faglegra starfi en Paula hefur gegnt lykilstarfi í þróun blakstarfsins hjá KA frá árinu 2018.“
Frá því að Paula gekk í raðir KA fyrir tímabilið 2018-2019 hefur hún verið ein besta blakkona landsins og hefur kvennalið KA fimm sinnum orðið Íslandsmeistari, fjórum sinnum bikarmeistari og sex sinnum deildarmeistari, auk þess að vinna titilinn Meistarar meistaranna nokkrum sinnum.
Paula hefur einnig drifið áfram starfið í yngri flokkum blakdeildarinnar, sem hefur skilað sér í mikilli fjölgun iðkenda.
„Það er ákaflega jákvætt að hafa fengið Paulu inn í þetta nýja og metnaðarfulla starf hjá blakdeildinni og höfum við mikla trú á því að hún muni halda áfram að bæta umgjörðina og metnaðinn í bæði starfi meistaraflokka KA sem og hjá yngriflokkunum okkar,“ segir í tilkynningu blakdeildar KA.