Fara í efni
Grímsey

Vorhugur kominn í fuglana í Grímsey

Snjótittlingur/Sólskríkja í Grímsey í sumarbúningi. Mynd: akureyri.is/María H. Tryggvadóttir.

Fuglalífið í Grímsey er farið að taka við sér eftir mildan og snjóléttan vetur og fyrstu merki vorsins farin að láta á sér kræla í eyjunni. Heimamenn hafa undanfarnar vikur orðið varir við aukna hreyfingu fugla og segja að vorhugur sé greinilega farinn að færast yfir fuglalífið.

Svafar Gylfason, sem býr í Grímsey og fylgist náið með fuglalífinu þar, segir í viðtali á grimsey.is að nú sé farið að koma nýtt hljóð í fuglana. Lítið hafi heyrst í þeim þar til fyrir stuttu og þeir eflaust farnir að undirbúa sig fyrir verkefni sumarsins.

Töluvert hefur einnig verið af snjótittlingum í eyjunni í vetur. Heimafólk hefur að venju gefið þeim að éta yfir vetrarmánuðina og að sögn Svafars hafa þeir verið óvenju margir að þessu sinni. Svartþrestir og skógarþrestir komu fyrir u.þ.b. tveimur vikum út í eyju og fyrsti auðnutittlingurinn er nýkominn. Reikna má með að svartfuglinn setjist upp í björgin á næstu dögum en hann er farinn að nálgast eyjuna og heldur sig um þessar mundir mikið nærri fjörunni norðaustur af eyjunni.

Eitt hrafnapar hefur haldið til í eyjunni svo lengi sem elstu menn muna og verpir yfirleitt í Básavíkinni. Í haust hvarf annar hrafninn og talið var að hann hafi drepist. Um helgina sást hins vegar aftur til tveggja hrafna í eyjunni íbúum til mikillar gleði.

Grímsey er þekkt fyrir fjölbreytt fuglalíf og gegna fuglar mikilvægu hlutverki í náttúru eyjarinnar. Á hverju ári verpa fjölmargar tegundir sjófugla í björgum eyjarinnar og laða þeir að sér bæði náttúruunnendur og ferðamenn.

Með hækkandi sól og batnandi veðri má búast við að fleiri farfuglar fari að skila sér til eyjarinnar á næstu vikum og að fuglalífið taki enn frekar við sér þegar líður á vorið.