Fara í efni
Grímsey

Grunnstoðir stöðugt veiktar í Grímsey

Stöðugt er verið að veikja grunnstoðir samfélagsins í Grimsey, „ekki vegna náttúrlegra aðstæðna heldur vegna pólitískra ákvarðana og aðgerðaleysis“. Þetta segir Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, í grein sem akureyri.net birtir í dag.

Bæjarstjórinn segir að ekki fari framhjá neinum sem heimsæki Grímsey að þar sé samfélag „sem býr yfir ótrúlegum styrk og þrautseigju. Með þetta í farteskinu hafa Grímseyingar haldið áfram og sýnt okkur samheldni og úthald við aðstæður sem íbúar í þéttbýlinu mundu flestir telja ólíðandi. En síðustu aðgerðir eða kannski væri rétt að segja aðgerðarleysi stjórnvalda eru þannig að úthald Grímseyinga fer minnkandi“. 

Ásthildur segir meðal annars:

„Löngu er kominn tíma á að endurnýja ferjuna Sæfara sem hefur verið frá því í nóvember sl samtals 3 mánuði í slipp með hléum þó. Það ætti að segja allt um ástand skipsins. Tillögur um að fækka ferðum Sæfara eru enn eitt áfallið,“ því Sæfari sé líflínan við Grímsey.

Boðaðar breytingar á byggðakvóta munu hafa verulega neikvæð áhrif á Grímsey þar sem atvinnulíf eyjunnar byggist að mestu leyti á honum, „bæði sértækum byggðakvóta Byggðastofnunar og almennum byggðakvóta. Fáir útgerðaraðilar eiga enn aflamark og þess vegna skiptir byggðakvótinn öllu máli. Lífið í eynni stendur og fellur með sjávarútvegi, svo einfalt er það. Hann er hryggjarstykkið þó svo að ferðaþjónustan hafi vaxið umtalsvert á síðustu árum. En hún veikist líka þegar samgöngur eru ótryggar“.

Grein Ásthildar: Vilja stjórnvöld halda Grímsey í byggð?