Fara í efni
Grímsey

591 brautskráðist frá HA – aldrei verið fleiri

Myndir af vef Háskólans á Akureyri

Fleiri kandídatar brautskráðust frá Háskólanum á Akureyri á Háskólahátíð sem fram fór á föstudag og laugardag en nokkurn tíma áður. Alls brautskráðist 591 kandídat í grunn- og framhaldsnámi af tveimur fræðasviðum; 162 úr framhaldsnámi á föstudag og 429 úr grunnnámi í þremur athöfnum á laugardag.

Í fyrstu athöfn laugardagsins voru brautskráðir kandídatar með bakkalárpróf af Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviði. Í annarri athöfn voru brautskráðir kandídatar með bakkalárpróf af Hug- og félagsvísindasviði og loks voru brautskráðir kandídatar með diplómu af báðum fræðasviðum í þriðju og síðustu athöfn laugardags.

Stöðugur vöxtur

„Þessi stóri hópur endurspeglar stöðugan vöxt skólans og fleiri hafa sótt um nám fyrir næsta ár en nokkru sinni fyrr. Saman mynda svo kennarar, stúdentar og starfsfólk þekkingarsamfélag sem er mikilvægt fyrir Ísland allt. Er það lykillinn að frekari þróun háskólans að við höldum áfram að eflast og stækka og verðum vonandi annar stærsti háskóli Íslands í framtíðinni,“ sagði Áslaug Ásgeirsdóttir rektor Háskólans á Akureyri í ávarpi sínu á hátíðinni. Áslaug tók við starfinu síðasta sumar og brautskráði nú kandídata á Háskólahátíð í fyrsta skipti en fyrsta árgang kandídata brautskráði hún á Vetrarbrautskráningu í febrúar, að því er segir á vef skólans.

Áslaug Ásgeirsdóttir rektor Háskólans á Akureyri á Háskólahátíð.

Áslaug sagði vöxt og styrkingu náms ekki gerast í tómarúmi og þakkaði kennurum og öðru starfsfólki skólans. „Það leggur metnað í að skapa umgjörð fyrir kennslu og skapa nýja þekkingu. Það er ykkur að þakka að Háskólinn á Akureyri hefur áunnið sér traust, bæði meðal stúdenta og samfélagsins sem við þjónum.“

Skiptir máli fyrir landið allt

Áslaug sagði síðan:

„Háskóli er ekki einungis vettvangur kennslu og rannsókna – hann er líka samfélag. Háskólinn á Akureyri er staðsettur utan höfuðborgarsvæðisins og því gegnum við mikilvægu hlutverki á Akureyri, á Norðurlandi og á landsbyggðinni allri. Á þeim nærri 38 árum sem skólinn hefur starfað hefur hér verið byggt upp sjálfstætt þekkingarsamfélag. Það samfélag þjónar öllum byggðum landsins og gerði íbúum dreifðari byggða kleift að sækja sér háskólanám.

Það skiptir máli – ekki aðeins fyrir svæðið heldur fyrir landið allt. Við erum stærsti skólinn á landinu sem menntar fólk í heimabyggð. Þannig tryggjum við að ný þekking dreifist um landið og sé ekki bara bundin við höfuðborgarsvæðið. Það er mikilvægt fyrir byggð um landið allt að þekking og nýsköpun fái að lifa og dafna alls staðar. Í viðræðum um hugsanlega sameiningu við Bifröst höfum við lagt áherslu á að hér starfi áfram landsbyggðarháskóli sem stuðli að búfestu á landinu öllu.“

Í sumarsól! 
„HA-ingar hafa verið heppnir með veður þegar Háskólahátíð er haldin og var það alls engin undantekning í ár og má með sanni segja að veðrið hafi leikið við kandídata og gesti,“ segir í texta undir þessari mynd á vef skólans. Og það voru sannarlega engar ýkjur.

Viðurkenningar
Margvíslegar viðurkenningar voru veittar fyrir góðan námsárangur í grunnnámi. Anna Þyrí Halldórsdóttir brautskráðist t.d. með hæstu einkunn kandídata er brautskráðst hafa frá Viðskiptadeild til BS gráðu frá upphafi. Hún er hér ásamt Sigurði Ragnarssyni, deildarforseta Viðskiptadeildar. Til hægri eru Halldór Tumi Ólason og Sigurður Kristinsson deildarforseti Félagsvísindadeildar. Halldór Tumi hlaut viðurkenningu frá Landssambandi lögreglumanna fyrir hæstu meðaleinkunn í diplómanámi fyrir verðandi lögreglumenn.

Ávarp rektors í heild má lesa á vef skólans og þar er einnig að finna upplýsingar um fleiri viðurkenningar.

Nánar hér um Háskólahátíð á vef Háskólans á Akureyri