Golf
Hlynur áfram efstur hjá Miðflokknum
11.03.2026 kl. 14:00
Hlynur Jóhannsson bæjarfulltrúi, íþróttakennari og rekstrarstjóri, verður í 1. sæti á lista Miðflokksins við kosningarnar til bæjarstjórnar í vor og Inga Dís Sigurðardóttir varabæjarfulltrúi, kennari, náms- og starfsráðgjafi, verður í 2. sæti, eins og síðast.
Egill Einarsson verslunarmaður, sem er nýr á lista, verður í 3. sæti, í 4. sæti er Katrín Vilhjálmsdóttir snyrtifræðingur og sjúkraliði, Hannes Karlsson framkvæmdastjóri er í 5. sæti og Sigurbjörg Níelsdóttir skrifstofustjóri í 6. sæti.
Listann í heild má sjá á Instagram síðu Miðflokksins á Akureyri. Smellið á myndina hér að neðan til að sjá listann.
