Fara í efni
Gamla íþróttamyndin

Fimm stjörnu leikur hjá Atla og félögum

Fimm! Atli Sigurjónsson og dætur hans glöð í bragði eftir leik. Nadía Lea á háhesti og Írena Röfn. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Þórsarar komust í kvöld í undanúrslit Lengjubikarkeppni karla í knattspyrnu þegar þeir lögðu Valsmenn 5:1 í Boganum. Á engan er hallað þótt Atli Sigurjónsson sé útnefndur maður dagsins því hann gerði öll fimm mörk Þórs í leiknum!

Eftir leik dagsins er Atli skráður með sjö mörk í keppninni en hefur reyndar gert 11; mörkin fjögur sem hann gerði í 10:0 sigri á Völsungi voru þurrkuð út úr tölfræðiskýrslum eftir að Húsvíkingar drógu lið sitt úr keppninni. Atli gerði eitt mark þegar Þór vann Gróttu 3:1 og annað í 5:0 sigri á Aftureldingu.

Ungt lið frá Hlíðarenda

Valsmenn stilltu upp mjög ungu liði, við litla hrifningu a.m.k. sumra viðstaddra. Einstaka sunnanlið hafa gripið til þessa bragðs í Lengjubikarnum síðustu ár þegar leikið var í Boganum – stundum vegna meintrar meiðslahættu á gervigrasinu þar, að sögn, en Valsmenn neituðu að sú væri ástæðan. Töluvert væri um meiðsli í herbúðum þeirra og þess vegna væri liðið skipað eins og raunin var. 

Þannig vill til að Valur og Þór mætast í Reykjavík í 1. umferð Íslandsmótsins eftir mánuð, sunnudaginn 12. apríl, og ljóst að annar mannskapur mætir til leiks í Valstreyjunum þá en í dag, a.m.k. að langmestu leyti.

Spennandi Þórslið

Valsmenn komust yfir í dag þegar Kristján Oddur Kristjánsson skallaði boltann í netið úr miðjum vítateig fljótlega eftir hornspyrnu. Þetta var á 15. mínútu en þegar tæpur hálftími var liðinn jafnaði Atli metin af stuttu færi og undir lok hálfleiksins kom hann Þór í 2:1 með laglegu skoti frá vítateigshorni. Atli bætti við þremur mörkum í seinni hálfleik og er augljóslegu í fantaformi. Aðrir léku líka vel og góður bragur er á liðinu þótt vissulega sé erfitt að meta stöðu þess í ljósi andstæðinganna að þessu sinni. Óþarfi er að ofmetnast; þetta er „bara“ Lengjubikarinn en breiddin í hópnum er orðin býsna mikil, fjölmargir uppaldir Þórsarar og þrír „gamlir“ komnir aftur heim, Atli, Ágúst Eðvald Hlynsson og Bjarni Guðjón Brynjólfsson.

Þórsarar leika í sumar í efstu deild Íslandsmótsins á ný eftir 11 ára fjarveru og næsta víst að margir bíða spenntir.

Þórsarar sigruðu í 2. riðli A-deildar keppninnar en Valsmenn urðu í þriðja sæti. Ekki er ljóst hverjum Þórsarar mæta í undanúrslitunum eða hvenær.

  • Bjarni Guðjón Brynjólfsson var í byrjunarliði Þórs í dag. Þetta var fyrsti leikur Bjarna eftir að hann kom aftur til uppeldisfélagsins á dögunum, að láni frá FH.
  • Sigfús Fannar Gunnarsson kom inn á í seinni hálfleik. Þetta var fyrsti leikur hans í langan tíma; Sigfús, markahæsti maður Lengjudeildarinnar í fyrra, hefur verið frá um langa hríð vegna meiðsla.
  • Ibrahima Balde var ekki í hópnum hjá Þór í dag. Hann mun lítillega meiddur.

Leikskýrslan

Lokastaðan í riðlinum