Fara í efni
Gamla íþróttamyndin

Uppselt á langþráða Akureyrarslaginn

Þessi einföldu skilaboð og skýru voru birt á Instagram reikningi knattspyrnudeildar Þórs í gær.

Uppselt er á leik Þórs og KA í efstu deild Íslandsmóts karla í knattspyrnu, Bestu deildinni, sem fram fer á nýjum gervigrasvelli Þórs, VÍS-vellinum, á laugardaginn. Margir bíða leiksins með óþreyju og skyldi engan undra því félögin hafa ekki verið samtímis í efstu deild í 24 ár; þau léku síðast bæði í deildinni árið 2002.

Bæði lið hófu forsölu í vikunni og seldust miðarnir eins og heitar lummur. Alls voru seldir 1500 miðar á leikinn, KA fékk 400 en Þórsarar seldu sjálfir 1100 miða.

Flautað verður til leiks kl. 16.00 á laugardaginn á VÍS-velli Þórs og óhætt er að reikna með miklu fjöri bæði innan sem utan vallar. Fyrsti leikur í meistaraflokki á nýja vellinum var viðureign Þórs og Fram á sumardaginn fyrsta, á fimmtudegi í síðustu viku. Þá var þétt setinn bekkurinn en ljóst að töluvert fleiri verða á vellinum þegar KA kemur í heimsókn; bætt verður við áhorfendastæðum fyrir laugardaginn. 

Bekkurinn var þétt setinn þegar Þór og Fram mættust í síðustu viku á gervigrasvelli Þórs,VÍS-vellinum, en áhorfendur verða mun fleiri á laugardaginn. Mynd: Ármann Hinrik