Gamla íþróttamyndin
Daði sleit hásin, Hafþór og Bjarni hvorugur með
12.03.2026 kl. 19:15
Bjarni Ófeigur Valdimarsson, Hafþór Vignisson og Daði Jónsson. Myndir: Skapti Hallgrímsson
Tveir lykilmenn handboltaliðs KA og einn af burðarásum Þórs eru meiddir og missa af stórleik Akureyrarliðanna í lokaumferð Olísdeildarinnar í kvöld.
- Daði Jónsson fyrirliði KA og grjótharður varnarmaður sleit hásin á æfingu í gærkvöldi og verður lengi frá.
- Stórskyttan Bjarni Ófeigur Valdimarsson hefur glímt við meiðsli undanfarið. Hann kom örlítið við sögu í síðasta leik KA en spilar ekki í kvöld.
- Hafþór Vignisson, örvhenta skyttan frábæra í Þór, meiddist á ökkla í fyrri hálfleiknum í sigurleiknum gegn Aftureldingu í síðustu umferð. Hann lauk þó leiknum en spilar ekki í kvöld.
- Þá er Norðmaðurinn Morten Boe Linder ekki með KA frekar en undanfarið. Hann fór úr axlarlið í leik fyrir skömmu.