Fara í efni
Flugsafn Íslands

Tonatröð, Antonshagi, Tonatún, Tonanaust?

Leikskólinn Hagasteinn, þar sem Naust II stóðu áður, nýja ónefnda gatan þar sem heimreiðin að Naustum II var eftir að Naustahverfið tók að byggjast og Naustavegurinn var lagður. Fyrir miðri mynd til hægri og efst sést það sem eftir er af gömlu Naustabæjunum. Mynd: Þorgeir Baldursson.

„Hvað á nýja gatan að heita?“ var fyrirsögn á frétt akureyri.net í gær og sömu spurningu varpað fram þegar fréttinni var deilt á Facebook-síðu miðilsins. Lesendur brugðust skjótt við og hátt í 80 manns köstuðu fram hugmyndum að nafni, samtals yfir 60 mismunandi nöfnum. Rétt er þó að taka fram að ekki er um eiginlega samkeppni að ræða.

Í fréttinni kom fram að skipulagsráð leitaði að nafni á nýja götu sem varð til austan við nýjan leikskóla, Hagastein, við Naustaveg, og hafi leitað eftir tillögum frá ungmennaráði. Ekki hefur komið fram hvort eða hvaða nöfn ungmennaráð hafi lagt fyrir skipulagsráð.

Hugmyndir frá lesendum streymdu inn í gegnum athugasemdakerfið á Facebook-síðunni og undir miðnættið var komið 61 nafn, sum nöfnin nefnd oftar en einu sinni og það sem oftast var nefnt kom fimm sinnum fyrir.

Einnig barst tölvupóstur frá Ingvari Þóroddssyni lækni með tillögu um nafnið Maríunaust til minningar um Maríu Sigurðardóttur, „þá merku konu sem var síðasti íbúi í íbúðarhúsi því á Naustum sem vék fyrir leikskólanum,“ eins og Ingvar orðar það.

Nokkrir þeirra lesenda sem komu með hugmynd að nafni minntust Antons á Naustum, eða Tona eins og flestir nefndu hann. Fannst mörgum viðeigandi að minnast Tona með nafngiftinni á þessari nýju götu. Skemmtilegasta tillagan án efa sú að nefna götuna Tonatröð, sem ef til vill myndi rugla einhverja í ríminu vegna Tónatraðar sem liggur ofan við Spítalaveginn. Nokkur önnur nöfn komu fram þar sem tengingin var við Tona á Naustum. 

Anton á Naustum, í stígvélum traustum

Toni var kúa- og svínabóndi að Naustum II og hét fullu nafni Anton Valdimar Jónsson, fæddur 13. ágúst 1928, dáinn 20. október 2009. Blaðið Verkamaðurinn birti skemmtilegt viðtal við Tona föstudaginn 18. desember 1959 undir fyrirsögninni „Þá mjólka bílarnir beljurnar, þegar blindhríð er útifyrir“ þar sem hann lýsir því hvernig hann nýtti bílmótor sem loftsugu til að knýja mjaltavél í rafmagnsleysi sem varð í óveðri 8. nóvember það ár, eða „þegar rafmagnið frá Laxá týndist þarna á dögunum,“ eins og Toni orðar það í viðtalinu.

Í athugasemdum þar sem Toni var nefndur og tillögur að götunöfnum sem honum tengjast var Tona minnst með hlýju. „Anton á Naustum, í stígvélum traustum,“ nefndi ein þeirra sem minntust á Tona. Ef til vill væri tilhlýðilegt að minnast Tona á Naustum með götunafni á þessum stað.

Loftmyndir af Naustabæjunum. Sú efri er frá 2024 og þar sést heimreiðin að Naustum II vel, hægra megin við bæinn á miðri myndinni. Neðri myndin er frá árinu 2000. Skjáskot af kortasjánni map.is/akureyri.

Nýja gatan er að segja má endurbyggð heimreið að Naustum II eins og hún var eftir að uppbygging Naustahverfis hófst fyrir rúmum 20 árum og gatan sem nú heitir Naustavegur varð til, en leikskólinn Hagasteinn var byggður bókstaflega þar sem bærinn Naust II stóð áður. 

Níu nöfn til minningar um Tona

Hér eru Tonanöfnin og tölur sem sýna hve oft þau voru nefnd:

  • 4 - Tonatröð
  • 3 - Antonshagi, Tonatún
  • 2 - Tonanaust
  • 1 - Tonabraut, Tonagarður, Tonahagi, Tonaslóð, Tonastígur

Hugmyndir að 52 öðrum nöfnum

Önnur nöfn sem komu frá lesendum: 

  • 5 - Hagasteinn (sama og nafn nýja leikskólans)
  • 3 - Naustahagi, Naustastígur, Steinhagi
  • 2 - Hagatröð, Hagatún, Hagi, Krílahagi, Naustatröð, Nausthagi, Séstvarlagata (Sést varla gata), Steinsnar, Varlagata
  • 1 - Áttagata, Barnagata, Barnahagi, Finnstvarlagata, Gilhagi, Hagagata, Hagamelur, Hagamúsahagi, Haganaust, Hagastubbur, Heimahagi, Heimtröð, Kjarnasteinn, Krakkagata, Krílastígur, Markúsargata, Menntabraut, Músastígur, Músatröð, Naust, Naustaslóð, Naustatún, Naustavað, Nillahagi, Óli prik, ReynduAðHagaÞér, Skólasteinn, Sólhagi, Steinarshagi, Steinatún, Steinsgata, Steinshagi, Stólpasteinn, Stubbahagi, Þorgerðarhagi, Þrengsli, Vallagata, Viðbótarhagi, Örtröð.
  • Maríunaust - til minningar um Maríu Sigurðardóttur, síðasta íbúa að Naustum II.

Frétt akureyri.net í gær: Hvað á nýja gatan að heita?