Fara í efni
Fimleikar

Sex mörk gegn engu – 55 skot SA gegn tíu

Unnar Hafberg Rúnarsson einbeittur í leik með SA. Hann skoraði tvö mörk og átti tvær stoðsendingar í sigurleik kvöldsins gegn Fjölni. Mynd: Rakel Hinriksdóttir.

SA Víkingar unnu öruggan sigur á liði Fjölnis í Toppdeild karla í íshokkí í kvöld. Lokatölur urðu 6-0. Unnar Hafberg Rúnarsson var áberandi á skortöflunni, skoraði tvö mörk og átti tvær stoðsendingar. Fjölnismenn komust lítt áleiðis í sókninni eins og sést kannski best á fjölda markskota, SA með 55 skot á mark á móti tíu skotum Fjölnismanna. 

Unnar náði forystunni fyrir SA eftir rúmar fjórar mínútur þegar þeir rauðu voru tveimur fleiri á svellinu eftir að tveir Fjölnismenn höfðu fengið refsingu fyrir að fella leikmenn SA í sömu sókninni. Það tók fimm útileikmenn SA aðeins 15 sekúndur að nýta sér liðsmuninn. Það var hins vegar jafnt í liðunum þegar annað markið kom um fimm mínútum síðar, Jóhann Már Leifsson skoraði þá eftir þunga sókn SA.

Þriðja mark SA kom eftir aðeins 19 sekúndna leik í annarri lotunni. Ormur Jónsson átti þá skot að marki og Unnar náði að snerta pökkinn í loftinu og breyta stefnu hans þannig að hann hafnaði í netinu. Rúmum fjórum mínútum síðar kom Uni Blöndal SA í 4-0 með skoti af stuttu færi. Heiðar Gauti Jóhannsson kom SA í 5-0 með skemmtilegu marki þegar önnur lotan var rúmlega hálfnuð. 

Þriðja lotan var tíðindalítil þar til um þrjár mínútur voru eftir þegar Hafþór Andri Sigrúnarson slapp inn fyrir vörn Fjölnis og skoraði sjötta mark SA. Öruggur sigur í höfn og aldrei spurning hvort liðið myndi hirða stigin þrjú.

SA - Fjölnir 6-0 (2-0, 3-0, 1-0)

  • 1-0 - Unnar Hafberg Rúnarsson (04:18). Stoðsendingar: Ormur Jónsson, Uni Blöndal.
  • 2-0 - Jóhann Már Leifsson (09:12). Stoðsendingar: Andri Már Mikaelsson, Hafþór Andri Sigrúnarson.
    - - -
  • 3-0 - Unnar Hafberg Rúnarsson (20:19). Stoðsendingar: Ormur Jónsson, Robbe Delport.
  • 4-0 - Uni Blöndal (24:35). Stoðsendingar: Robbe Delport, Unnar Hafberg Rúnarsson
  • 5-0 - Heiðar Gauti Jóhannsson (33:05). Stoðsendingar: Unnar Hafberg Rúnarsson, Ormur Jónsson.
    - - -
  • 6-0 - Hafþór Andri Sigrúnarson (56:59). Stoðsendingar: Jóhann Már Leifsson, Hank Nagel.

Helstu tölur:

SA

Mörk/stoðsendingar: Unnar Hafberg Rúnarsson 2/2, Jóhann Már Leifsson 1/1, Uni Blöndal 1/1, Hafþór Andri Sigrúnarson 1/1, Heiðar Gauti Jóhannsson 1/0, Ormur Jónsson 0/3, Robbe Delport 0/2, Andri Már Mikaelsson 0/1, Hank Nagel 0/1.
Varin skot: Jakob Jóhannesson 10 af 10 (100%).
Skot á mark: 55 (20, 21, 14).
Refsingar: 12 mínútur.

Fjölnir

Varin skot: Tuomas Heikkonen 49 af 55 (89,1%).
Skot á mark: 10 (1, 3, 6).
Refsingar: 10 mínútur.

SA er áfram fjórum stigum á eftir SR í baráttunni um deildarmeistaratitilinn, en á leik til góða. SA er með 22 stig eftir 11 leiki, en SR með 26 stig eftir 12 leiki. Eins og áður hefur komið fram er þegar orðið ljóst að það verða SA og SR sem mætast í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn, en fram undan er hins vegar barátta um efsta sæti deildarinnar, deildarmeistaratitilinn og oddaleiksréttinn.

Leikskýrslan

Staðan í deildinni