easyJet
Handbolti: KA sækir Víkinga heim í kvöld
11.09.2026 kl. 06:00
Mynd: Skapti Hallgrímsson.
Stuðningsmenn karlaliðs KA í handbolta þurfa enn að bíða eftir fyrsta heimaleiknum. KA byrjar Olísdeildina, efstu deild Íslandsmótsins í handbolta, á tveimur útileikjum, en fyrsti heimaleikurinn verður reyndar af stærra taginu.
KA vann HK í fyrstu umferðinni á útivelli með níu marka mun, 37-28, og sækir Víkinga heim í Safamýrina í kvöld. Víkingar töpuðu með sex marka mun fyrir Aftureldingu í Mosfellsbænum í fyrstu umferðinni, 35-29. Akureyri.net hefur nú þegar hitað upp fyrir handboltann með umfjöllun og viðtali við þjálfara um komandi vetur, væntingar til árangurs, breytingar á liðinu og svo framvegis - sjá hér. Eftir fyrsta leik varð hins vegar óvænt breyting á liði KA þegar Magnús Dagur Jónatansson samdi við ÍBV.
- Handbolti
Olísdeild karla, 2. umferð
Virkið í Safamýri kl. 20:15
Víkingur - KA