Fara í efni
easyJet

Afsláttur með Loftbrú verður föst tala

Flugvél frá Icelandair á leið til lendingar á Akureyrarflugvelli. Mynd: Ármann Hinrik.

Frá 1. janúar næstkomandi verður afsláttur Loftbrúar 7.000 krónur á hvern fluglegg, eða 14.000 krónur fyrir ferð fram og til baka. Þetta kemur fram í tilkynningu sem innviðaráðuneytið birti í dag. Önnur réttindi Loftbrúar breytast ekki. Um 62.000 manns eiga áfram rétt á Loftbrú og hver einstaklingur getur nýtt afslátt fyrir sex flugleggi á ári. Þessi breyting þýðir að fargjöld sem kosta meira en 17.500 krónur munu njóta lægri afsláttar en í núverandi kerfi.

Loftbrú veitir íbúum landsbyggðarinnar afslátt af innanlandsflugferðum til og frá höfuðborgarsvæðinu og hefur notið mikilla vinsælda frá því hún var tekin upp í september 2020. Um 80.000 ferðir hafa verið farnar með Loftbrú á ári síðustu ár. Þar af eru 52 prósent milli Akureyrar og Reykjavíkur og 32 prósent milli Egilsstaða og Reykjavíkur.

Fargjöld yfir 17.500 krónum verða dýrari en áður

Með nýja kerfinu skiptir verð flugmiðans ekki lengur máli fyrir fjárhæð afsláttarins. Það þýðir að áhrifin verða mismunandi eftir fargjaldi.

Verð á
fluglegg
Núverandi
40% afsláttur
Afsláttur frá
1. janúar 2027
10.000 kr. 4.000 kr. 7.000 kr.
15.000 kr. 6.000 kr. 7.000 kr.
17.500 kr. 7.000 kr. 7.000 kr.
25.000 kr. 10.000 kr. 7.000 kr.
30.000 kr. 12.000 kr. 7.000 kr.

 

Jafnvægispunkturinn er því 17.500 krónur. Af ódýrari miðum verður afslátturinn meiri en áður, en af dýrari miðum verður hann minni. 

Kostnaðurinn hefur farið fram úr heimildum

Samkvæmt tilkynningu ráðuneytisins hefur árleg fjárheimild til Loftbrúar verið 600 milljónir króna en kostnaðurinn árið 2025 var hins vegar um 740 milljónir. Verkefnið fór einnig fram úr heimildum árin 2023 og 2024.

Meðalniðurgreiðslan á hvern fluglegg hefur hækkað undanfarin ár og var 9.241 króna árið 2025. Nýi 7.000 króna afslátturinn er því um 24 prósentum lægri en meðalniðurgreiðslan var í fyrra, eftir því sem kemur fram í úttekt Austurfréttar um breytingarnar.

Miðað við óbreyttan fjölda flugleggja og 7.000 króna fastan afslátt yrði kostnaður ríkisins hins vegar um 560 milljónir króna, eftir því sem kemur fram hjá Austurfrétt. Kostnaðurinn yrði því innan núverandi fjárheimildar.

Fjárheimildin hefur rýrnað að raungildi

En ef 600 milljóna króna fjárheimildin hefði fylgt verðlagsþróun frá því Loftbrú var tekin upp væri hún nú um 860 milljónir króna, samkvæmt útreikningum sem Austurfrétt vitnar til. Vandinn er því ekki eingöngu sá að notkun Loftbrúar og kostnaður hafi aukist. Fjárheimildin hefur því rýrnað verulega að raungildi.

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segir í tilkynningu ráðuneytisins markmiðið með breytingunni að verja áframhaldandi ávinning Loftbrúar en gera kostnaðinn fyrirsjáanlegri og halda honum innan fjárlaga. „Þjónusta Loftbrúar hefur verið þýðingarmikil fyrir íbúa á landsbyggðinni. Markmiðið með breytingum á fyrirkomulaginu er að verja jákvæð áhrif Loftbrúar og tryggja að íbúar landsbyggðarinnar njóti áfram góðs af þeim ávinningi sem Loftbrú skapaði. Við viljum á sama tíma búa svo um hnúta að kostnaður verði fyrirsjáanlegri og innan ramma fjárlaga,“ segir Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra.