Fara í efni
DNG

50 ár frá fyrsta leik KA eftir ÍBA-tímann

Eyjólfur Ágústsson, til vinstri, gerði þrjú mörk í fyrsta leik KA í 3. deild. Á myndinni til hægri þrumar Ármann Sverrisson að marki, hann var iðinn við kolann sumarið 1975 og gerði mest fjögur mörk í einum og sama leiknum. Fyrirsögnin er úr Alþýðumanninum, blaði sem gefið var út á Akureyri.

Í dag eru 50 ár síðan KA hóf keppni í 3. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu, þeirri neðstu, eftir að samstarfi KA og Þórs var slitið í kjölfar þess að lið Íþróttabandalags Akureyrar (ÍBA) féll úr efstu deild haustið 1974.

KA tók fyrst þátt í Íslandsmótinu 1929, ári eftir að félagið var stofnað, aftur 1932 og loks 1941. Akureyrarfélögin tefldu fyrst fram sameiginlegu liði á Íslandsmótinu 1946 og síðan óslitið frá 1954 til 1974.

KA-menn stigu fyrstu skrefin í 3. deild laugardaginn 14. júní á Akureyrarvelli með því að sigra Leiftur frá Ólafsfirði 7:1.

Sigurinn var mjög öruggur, eins og tölurnar bera með sér. Byrjun KA-manna var reyndar ekki sú sem þeir óskuðu sér, en fall var fararheill.  Gestirnir náðu nefnilega forystu strax á þriðju mínútu þegar skíðagöngukappinn kunni Haukur Sigurðsson skoraði en KA-menn tóku síðan öll völd. Eyjólfur Ágústsson gerði þrjú mörk í leiknum, og eitt hver þeir Þormóður Einarsson, Jóhann „Donni“ Jakobsson, Ármann Sverrisson og Hafþór Sigurgeirsson.

Fyrsti leikur KA átti, skv. mótaskrá, að vera 31. maí gegn Eflingu að Laugum í Reykjadal en honum var frestað til 18. júní. 

  • Rafn Benediktsson stóð í marki KA lungann úr sumrinu en Sveinn Ævar Stefánsson leysti hann af hólmi seinni hluta mótsins eftir að Rafn meiddist.
  • Helstu varnarmenn KA þetta sumar voru Steinþór Þórarinsson, Haraldur Haraldsson, Magnús Vestmann, Gunnlaugur Björnsson og gamla kempan Jón Stefánsson, sem orðinn var 38 ára. Hann lagði skóna á hilluna nokkrum árum fyrr en tók þá fram að nýju og tók þátt í nokkrum leikjum KA þetta sumar. Jón lék lengi með ÍBA og 11 landsleiki frá 1961 til 1967.
  • Aðrir sem lék mest voru Þormóður Einarsson – sem einnig var formaður knattspyrnudeildar – Eyjólfur Ágústsson, Jóhann „Donni“ Jakobsson,  Ármann Sverrisson, Hafþór Sigurgeirsson, Guðmundur Heiðreksson og Sigbjörn Gunnarsson.
  • Þjálfari KA þetta sumar var Einar Helgason.

Jóhann „Donni“ Jakobsson, til vinstri, og Eyjólfur Ágústsson léku báðir með ÍBA og síðan með KA eftir að Akureyrarliðin hófu að leikja undir eigin merkjum. Eyjólfur gerði þrjú mörk í fyrsta leik KA í 3. deildinni og Jóhann eitt. 

  • KA-menn léku í D-riðli 3. deildar með KS frá Siglufirði, Eflingu úr Reykjadal, Leiftri frá Ólafsfirði og Ungmennasamandi Skagfirðinga (UMSS). KA vann alla leikina nema gegn UMSS á útivelli, sem endaði með jafntefli.
  • Efnaverksmiðjan Sjöfn auglýsti á búningi KA sumarið 1975. Merki Sjafnar prýddi þá treyjuna en á myndunum að ofan eru þeir Jóhann „Donni“ Jakobsson og Eyjólfur Ágústsson í búningi ÍBA sumarið 1972; Donni í varabúningnum þar sem þvottaefnið Vex var auglýst en á aðaltreyjunni var það málningartegundin Polytex.

Akureyrarliðin mættust í úrslitaleik 3. deildar um haustið. Þórsarar unnu 4:0 en KA fluttist einnig upp í 2. deild að ári eftir aukaleiki við Ísfirðing og Víking frá Ólafsvík. 

  • Þórsarar hófu keppni í 3. deild nákvæmlega viku á undan KA, eins og rifjað var upp hér síðastliðinn laugardag:

50 ár frá fyrsta leik eftir ÍBA-tímann

Meira um þetta eftirminnilega knattspyrnusumar síðar