Norsk stúlka og tvær ungverskar í KA/Þór

Þrír erlendir leikmenn hafa samið við kvennalið KA/Þórs sem leikur í efstu deild Íslandsmótsins í handbolta á nýjan leik í vetur. Þetta var tilkynnt á heimasíðu KA í dag.
KA/Þór sigraði með glæsibrag í næst efstu deild í vor, án þess að tapa leik, og liðið býr sig nú undir baráttu vetrarins. Leikmennirnir sem um ræðir eru Ungverjarnir Bernadett Réka Leiner og Anna Petrovics og hinn norska Trude Blestrud Håkonsen.
- Trude Blestrud Håkonsen er „spennandi örvhent skytta sem einnig getur leikið í horninu,“ segir á heimasíðu KA. Hún er fædd árið 1994 og kemur frá liði Junkeren í borginni Bødo sem vill svo skemmtilega til að er í fylkinu Nordland sem kallað er Norðurland á íslensku. Bødo er norðan heimskautsbaugs þannig að leikmaðurinn ætti ekki að verða í vandræðum með að venjast aðstæðum á Akureyri.
- Håkonsen hefur leikið með Junkeren frá árinu 2020. Hún hefur verið í lykilhlutverki þar, skv. tilkynningu KA, þar sem segir að á síðustu leiktíð hafi hún gert 92 mörk í 22 leikjum í 2. deild.
- Bernadett Réka Leiner er 26 ára markvörður og Anna Petrovics getur leyst allar stöður fyrir utan, eins og segir á heimasíðu KA. Hún er 23 ára gömul. Þær koma báðar frá austurríska liðinu Greenpower JAGS.
„Við viljum að sjálfsögðu spila eins mikið og hægt er á okkar heimastelpum, en það var alveg ljóst að það þurfti að breikka hópinn og styrkja fyrir baráttuna í efstu deild,“ er haft eftir Stefáni Guðnasyni, formanni kvennaráðs KA/Þórs, á heimasíðu KA. „Koma þremenninganna er klárlega lykilskref fyrir hópinn okkar og teljum við okkur vera að taka rétt skref í framþróun okkar uppöldu leikmanna. Jonni þjálfari hefur margoft sýnt að hann er gríðarlega öflugur í að vinna með og þróa unga leikmenn áfram og verður gaman að sjá hópinn taka næstu skref með þeim Bernadett, Önnu og Trude innanborðs.“