Fara í efni
Covid-19

Akureyri verður senn „Í hers höndum“

Mynd: Minjasafnið á Akureyri

Ný sýning um hernámsárin á Akureyri og í Eyjafirði verður opnuð á Minjasafninu á Akureyri næsta laugardag, 6. júní. Sýningin nefnist Í hers höndum og verður opin næstu þrjú árin.

Haraldur Þór Egilsson safnstjóri segir sýninguna byggða á ljósmyndum, frásögnum og ýmsu efni sem safnið hefur safnað um veru hermanna á svæðinu á stríðsárunum. Þar verði bæði sagðar sögur heimafólks og hermanna sem dvöldu í Eyjafirði.

Kort af braggahverfum á svæðinu

Áhersla sé lögð á myndræna og lifandi framsetningu. Meðal annars hafi safnið kortlagt svokölluð braggahverfi í Eyjafirði og sett þau fram á sérstöku korti á sýningunni. „Ég held að það séu einkum 32 braggahverfi sem að eru hér í Eyjafirði sem að við setjum fram á skemmtilegu korti,“ segir Haraldur. Hann telur að saga hernámsáranna sé að einhverju leyti að gleymast á Akureyri, þrátt fyrir að víða megi enn sjá ummerki frá þessum tíma í bænum. Nefnir hann í því sambandi bílastæði eitt í bænum, sem sé mikið notað, en að fólk átti sig ekki á því að þar hafi verið braggi. 

Fyrirspurnir frá ferðafólki um hernámsárin

Haraldur segir að lítið hafi varðveist af gripum frá þessum tíma en þó hafi tekist að afla ýmissa muna og annars efnis til að styðja við sýninguna. Þá verði einnig notast við ýmsa leikmuni og uppsetningu til að gera hana aðgengilegri og líflegri. Að sögn Haraldar hefur safnið fundið fyrir vaxandi áhuga bæði meðal heimamanna og ferðafólks á sögu hernámsáranna og fengið fjölda fyrirspurna um tímabilið. Upphaflega hafi verið gert ráð fyrir að sýningin yrði sett upp síðar, en ákveðið hafi verið að flýta verkefninu vegna áhugans.  

Veist þú hvar braggahverfin voru á Akureyri? Á sýningunni Í hers höndum á Minjasafninu á Akureyri er að finna kort af 32 braggabyggðum við Eyjafjörð. Mynd: Minjasafnið á Akureyri 

„Ástæðan fyrir því að við förum af stað með þessa sýningu er að við fundum fyrir áhuga bæði heimafólks og ferðafólks á þessu tímabili. Við fáum mikið af fyrirspurnum um stríðsárin í gegnum tölvupóst. Þannig að það var svona út af því að við ákváðum að drífa okkur í að gera þessa sýningu sem að var svo sem á plani en átti að vera sett upp eftir fjögur ár.“

Óska eftir fleiri frásögnum

Haraldur segir að vinnan við sýninguna muni halda áfram eftir opnun hennar og að safnið hyggist áfram safna sögum og heimildum frá almenningi. „Sýningin er kannski meira upphaf heldur en endir,“ segir hann og bætir við að sýningar ýti oft undir að fólk muni eftir einhverju eða vilji deila sögum.  Safnið hyggst jafnframt óska eftir frekari frásögnum og munum frá fólki sem gætu átt heima á sýningunni.

Sýningin verður bæði á íslensku og ensku og verður hún í norðursal á efri hæð safnsins þar sem tónlistarsýning var áður til húsa. Sýningin opnar eins og áður segir þann 6. júní.