Fara í efni
Birgir Orri Ásgrímsson

Þórsarar semja við reyndan Spánverja

Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Þórs býður Kevin Vazquez velkominn í dag. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Knattspyrnudeild Þórs hefur samið við þrautreyndan spænskan knattspyrnumann, Kevin Vazquez, sem lengi lék með uppeldisfélaginu, Celta Vigo. Hann er 33 ára og á að baki alls 82 leiki með aðalliði Celta í efstu deild á Spáni, La Liga, og spænsku bikarkeppninni, Copa del Rey, þónokkra sem fyrirliði að því er segir í tilkynningu frá Þórsurum.

Samningur Vazquez við Þór gildir út næsta keppnistímabil, til hausts 2027. Hann er hægri bakvörður en er sagður fjölhæfur; getur leikið allar stöður í vörninni og auk þess á báðum köntum. Vazquez hefur verið á mála hjá B-deildarliði Sporting Gijon í heimalandinu síðustu tvö ár.

Vazquez er fimmti leikmaðurinn sem semur við Þór eftir að félagaskiptaglugginn var opnaður; annar Spánverji, framherjinn Victor Bertomeu, jafnaldri Vezquez, lék fyrsta leikinn fyrir Þór gegn KA á mánudag og einnig Þorri Ingólfsson, 16 ára sóknarmaður sem kom að láni frá Víkingi. Sá fjórði, Gyrðir Hrafn Guðbrandsson, kom að láni frá KR og var frábær í fyrsta leiknum – 2:1 sigri Þórs á Víkingi á heimavelli. Sá fimmti sem kom til Þórs í „glugganum“, Aron Einar Gunnarsson, staldraði reyndar ekki lengi við en átti stórleik eins og Gyrðir í eina leiknum, sigrinum á Víkingi, áður en hann hélt til liðs við nýja samherja í Qatar SC.

Laxness í norska Amaróhúsinu

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 12:00

Að lesa um afa

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
14. mars 2026 | kl. 11:30

Innflytjendur, samningar og staðreyndir

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
12. desember 2025 | kl. 06:00

Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
18. júní 2025 | kl. 19:30

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. febrúar 2025 | kl. 11:45

Lykill að áframhaldandi velgengni

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. nóvember 2024 | kl. 18:50