Fara í efni
Birgir Orri Ásgrímsson

Náttúrufegurð að vori, eitruð planta um haust

AF BÓKUM – 78

Starfsfólk Amtsbókasafnsins á Akureyri segir lesendum Akureyri.net alla þriðjudaga frá bók eða bókum. Það vekur vonandi athygli á bókakosti safnsins, þar sem af nógu er að taka, og glæðir áhuga sem flestra á bóklestri.
 

Í dag skrifar Aija Burdikova_ _ _

Leynigarðurinn (1911) eftir Frances Hodgson Burnett og Belladonna (2022) eftir Adalyn Grace

Það er komið vor og þar sem ég er mikil garðyrkjuáhugamanneskja langar mig að mæla með tveimur skáldsögum þar sem fjallað er um mátt plantna.

Fyrri bókin er Leynigarðurinn (The Secret Garden), sem flokkast undir barnabókmenntir, en ég las hana sjálf í fyrsta skipti í byrjun árs. Hún er einn af þessum klassísku bókmenntagullmolum sem ég fékk loksins að njóta.

Aðalsögupersónan er ung, munaðarlaus og ofdekruð stúlka, Mary, sem ólst upp á Indlandi. Eftir andlát foreldra hennar flytur hún til Yorkshire til að búa hjá frænda sínum. Þar finnur hún leyndan garð við hús hans, sem eiginkona hans hafði átt en hefur fallið í niðurníðslu eftir andlát hennar. Hún uppgötvar líka að hún á frænda á svipuðum aldri og hún, sem er mjög veikburða, og þau fara að eyða tíma saman í garðinum.

Mér finnst þessi bók tilvalinn léttlestur fyrir vorið, þar sem hún minnir mann á jákvæð áhrif útivistar, náttúrunnar og vorsins á andlega og líkamlega heilsu. Við eigum bókina á íslensku, pólsku og ensku.

Bókin Belladonna er ungmennabók sem fjallar um allt aðra árstíð – haustið. Hún dregur nafn sitt af sjáaldursjurt (Atropa belladonna), sem er mjög eitruð planta.

Aðalsögupersónan, Signa, er ung munaðarlaus kona sem flytur til frændfólks síns í herragarð við mýrlendi. Þar kemur í ljós að frænka hennar er látin og dóttir hennar er að deyja úr sömu veikindum. Signu fer að gruna að ekki sé um venjuleg veikindi að ræða. Hún reynir að komast að sannleikanum með aðstoð hesthúsdrengs og Dauðans sjálfs.

Bókin er fyrsti hluti í bókaseríu þar sem allar bækurnar bera nöfn eitraðra plantna – Foxglove (fingurbjargarblóm), Wisteria (bláregn) og Holly (kristþyrnir). Ég er mjög spennt að halda áfram með seríuna þar sem ég er aðeins búin með fyrstu bókina. Bókin er til hjá okkur á ensku.

Laxness í norska Amaróhúsinu

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 12:00

Að lesa um afa

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
14. mars 2026 | kl. 11:30

Innflytjendur, samningar og staðreyndir

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
12. desember 2025 | kl. 06:00

Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
18. júní 2025 | kl. 19:30

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. febrúar 2025 | kl. 11:45

Lykill að áframhaldandi velgengni

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. nóvember 2024 | kl. 18:50