Fara í efni
Birgir Orri Ásgrímsson

Framkvæmdir við Hagastein ganga vel

Mynd af akureyri.is

Framkvæmdir við leikskólann Hagastein í Hagahverfi ganga vel, að því er segir á vef Akureyrarbæjar. Fyrsta skóflustungan var tekin í maí árið 2025 og hófust framkvæmdir með jarðvinnu í júní sama ár. Nú er verið að leggja lokahönd á uppsetningu seinni áfanga byggingarinnar og á sama tíma er unnið áfram að innanhússfrágangi í fyrri áfanga.

Stefnt er að afhendingu fyrri áfanga um miðjan ágúst 2026. Þar verða fjórar deildir, eldhús, salur, hluti af starfsmannaaðstöðu og frágengin leikskólalóð að hluta ásamt bílastæðum austan við skóla. Seinni áfangi mun fylgja í kjölfarið og er stefnt að fullri starfsemi í leikskólanum byrjun árs 2027.

„Byggingin er reist úr krosslímdum gegnheilum timbureiningum og er sérstök áhersla lögð á vandaða rakavörn og góða hljóðvist. Rakamælingar eru framkvæmdar reglulega og við framkvæmd er lögð áhersla á að tryggt sé, eins og kostur er, að utanaðkomandi bleyta komist ekki að byggingarefninu,“ segir á vef sveitarfélagsins. „Aðalverktaki verksins er Byggingafélagið Húsheild/Hyrna ehf. sem hefur staðið vel að framkvæmd verksins með verkkaupa.“

Leikskólinn verður átta deilda og mun rúma allt að 156 börn á aldrinum eins til sex ára. Fjöldi barna stýrist af aldurssamsetningu barnahópsins á hverri deild. Gert er ráð fyrir um 40-42 stöðugildum og að fjöldi starfsfólks gæti orðið 50-55 samtímis vegna hlutastarfa, sérkennslu og afleysinga.

„Í starfsemi Hagasteins verður lögð áhersla á jákvæðan aga, hæglæti, umhverfismennt, barnasáttmálann, Réttindaskóla UNICEF og vellíðan, með það að markmiði að skapa öflugt náms- og starfsumhverfi. Sýn leikskólans er faglegur skóli, starfsánægja og fagleg forysta með gleði, traust og virðingu að leiðarljósi.“

Laxness í norska Amaróhúsinu

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 12:00

Að lesa um afa

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
14. mars 2026 | kl. 11:30

Innflytjendur, samningar og staðreyndir

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
12. desember 2025 | kl. 06:00

Hvorki „allt lokað“ né „allt opið“

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
18. júní 2025 | kl. 19:30

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. febrúar 2025 | kl. 11:45

Lykill að áframhaldandi velgengni

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
26. nóvember 2024 | kl. 18:50