Fara í efni
Baldvin Þór Magnússon

Vonandi slys hjá Þór – KA burstaði Hött

Ragnar Óli Ragnarsson í baráttu við sóknarmenn FH-inga. Ragnar gerði fyrra mark Þórs í dag og átti þátt í því seinna. Mynd: Ármann Hinrik

Þórsarar féllu úr bikarkeppni KSÍ í dag þegar þeir töpuðu 4:2 fyrir FH-ingum í Boganum í 32-liða úrslitum en KA-menn flugu áfram eins og vitað var með nokkurri vissu; þeir burstuðu D-deildarlið Hattar frá Egilsstöðum 5:0 í Fellabæ.

Liðin úr efstu deild, Bestu deildinni, hófu þátttöku í bikarkeppninni í þessari umferð og ljóst var við dráttinn að þrjú yrðu slegin út strax; Þór dróst gegn FH, Víkingur vann Fram í kvöld og á mánudag mætast KR og Valur.

Ódýr mörk í Boganum

Þórsarar komust yfir þegar 19 mínútnar voru búnar. Atli Sigurjónsson tók hornspyrnu frá hægri, sendi boltann inn á markteig og Ragnar Óli Ragnarsson, sá stæðilegi miðvörður, skoraði með föstum skalla í nærhornið.

Ekki liðu nema 10 mínútur þar til FH jafnaði; Arnór Borg Guðjohnsen fékk sendingu frá miðlínu inn fyrir vörnina og skoraði framhjá Aroni Birki markverði Þórs. Þarna galopnaðist vörnin, auk þess sem FH-ingurinn sem sendi boltann fékk nægan tíma til að athafna sig án þess að neinn Þórsari gerði tilraun til að trufla hann.

FH-ingar komust svo yfir rúmum fjórum mín. eftir jöfnunarmarkið og aftur vakti athygli hve varnarjaxlinn Yann Emmanuel Affi var óöruggur; FH-ingur slapp framhjá honum, lék inn í teig hægra megin og renndi fyrir markið þar sem Adolf Daði Birgisson sendi boltann í netið.

 

Þór - FH 1:0 Ragnar Óli Ragnarsson, Þórsarinn til hægri, skallar boltann í net FH-inga eftir hornspyrnu Atla Sigurjónssonar þegar 19 mínútur voru liðnar. Mynd: Ármann Hinrik 

Litlu munaði að Þór jafnaði þegar lítið var eftir af hálfleiknum. Eftir góða sókn renndi Atli Sigurjónsson boltanum á Ágúst Eðvald Hlynsson sem þrumaði honum frá markteigshorninu í stöngina og út.

Jafnræði var með liðunum framan af seinni hálfleik en FH-ingar veittu Þórsurum þungt högg á 67. mín. Kjartan Kári Halldórsson komst inn í vítateiginn vinstra megin og þrumaði boltanum inn á hættusvæðið, beint á Aron Birki markvörð. Ekki vildi betur til en svo að Aron náði ekki að handsama boltann sem spýttist af höndum hans og í netið. Sjaldgæf mistök hjá þessum trausta markverði.

Adolf Daði Birgisson veitti Þórsliðinu svo náðarhöggið aðeins fjórum mínútum eftir sjálfsmarkið. Hann fékk þá sendingu inn fyrir vörnina og Aron fékk engum vörnum við komið.
 
Aron Ingi Magnússon lagaði stöðuna fyrir Þór á síðustu andartökum leiksins. Eftir aukaspyrnu skallaði Ragnar Óli að marki FH, Jökull Andrésson varði en hélt ekki boltanum og Aron Ingi skoraði.
 
Sigur FH var sanngjarn, Þórsarar léku vel á köflum en gegn liði úr Bestu deildinni dugar ekki að „gefa“ mörk eins og raunin var; mistök í varnarleik af því tagi sem sást í dag mega ekki endurtaka sig. Vonandi var þetta slys.
 
Keppni í Bestu deildinni hefst um næstu helgi. Þórsarar sækja þá Valsmenn heim að Hlíðarenda og næsta víst er að þeir verða að gera betur en í dag. Allir vita hvað býr í leikmönnum Þórs og stuðningsmenn liðsins bíða spenntir, enda mörg ár síðan þeirra menn spreyttu sig í deild þeirra bestu. Þórsarar unnu næst efstu deild með glæsibrag í fyrra, nokkur breyting hefur orðið á leikmannahópnum síðan þá og ef til vill þarf meiri tíma til að slípa hann saman. Einn nýr leikmaður spilaði í dag norski framherjinn Sebastian Haugland og var lítt áberandi.

 

Sveinn Margeir Hauksson, til vinstri, var með KA í fyrsta skipti síðan hann kom að láni frá Víkingi. Hann gerði þriðja markið og Danijel Dejan Duric, til hægri, sem kom til KA frá Króatíu, gerði fyrsta markið fyrir félagið. Myndir: Skapti Hallgrímsson og KA.

Miklir yfirburðir

KA-menn höfðu mikla yfirburði í Fellabæ, þar sem gervigrasvöllur Egilsstaðafélagsins Hattar er – handan Lagarfljótsins.

Danijel Dejan Djuric gerði fyrsta markið – fyrsta mark hans fyrir KA – úr víti á 24. eftir að markvörður Hattar braut á Diego Montiel. Þrátt fyrir mikla yfirburði óðu KA-strákarnir ekki í færum í fyrri hálfleiknum því heimamenn vörðust grimmilega en Birgir Baldvinsson kom liðinu í þægilega stöðu skömmu fyrir lok leikhlutans þegar hann skoraði með skoti frá vítateigslínu.

Sveinn Margeir Hauksson, sem lék með KA frá 2019 til 2024 þegar hann hélt til náms í Bandaríkjunum, er nú samningbundinn Víkingi í Reykjavík en var á dögunum lánaður til KA. Dalvíkingurinn öflugi skrýddist gula og bláa búningnum á ný í dag og gerði þriðja markið gegn Hetti. Hann kom inná við upphaf seinni hálfleiksins og skoraði þegar korter var liðið, eftir glæsilega sending Birgis Baldvinssonar inn fyrir vörnina.

Bjarki Fannar Helgason gerði fjórða markið 10 mín. fyrir leikslok, gegn uppeldisfélaginu, eftir sending Hallgríms Mars Steingrímsson, og Hallgrímur gerði fimmta og síðasta markið úr víti í blálokin.

,

Þór - FH 2:4 Aron Ingi Magnússon skorar seinna mark Þórs í dag, þegar komið var í uppbótartíma, eftir að markvörður FH, Jökull Andrésson, varði skalla Ragnars Óla Ragnarssonar. Mynd: Ármann Hinrik

Þór - FH – Leikskýrslan

Höttur - KA – Leikskýrslan