Fara í efni
Baldvin Þór Magnússon

SR deildarmeistari eftir æsispennandi leik

SR-ingar eru deildarmeistarar í Toppdeild karla í íshokkí 2026 og eiga því oddaleiksréttinn í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn. Myndin er úr einvíginu í apríl í fyrra. Mynd: Rakel Hinriksdóttir.

SA Víkingar, karlalið Skautafélags Akureyrar, misstu af gullnu tækifæri til að vinna deildarmeistaratitilinn þegar liðið mætti SR-ingum í Skautahöllinni í Reykjavík í kvöld, þrátt fyrir að spila tveimur fleiri, raunar með þremur fleiri útileikmenn en heimamenn síðustu mínútuna og hluta framlengingar.

Að loknum venjulegum leiktíma var jafnt, 4-4, og það dugði SR, þeim nægði eina stigið sem þeir fengu þar til að halda efsta sæti deildarinnar. Akureyringum gekk illa að nýta sér liðsmuninn þrátt fyrir að heimamenn í Laugardalnum dveldu mun fleiri mínútur í refsiboxinu. Hvorugu liðinu tókst að skora í framlengingunni og var því gripið til vítakeppni þar sem SR-ingar höfðu betur.

Óhætt er að segja að leikur dagsins gefi hokkíáhugafólki góð fyrirheit áður en kemur að úrslitaeinvíginu sem hefst á milli þessara liða þriðjudaginn 10. mars.

Akureyringar opnuðu markareikninginn

Reykvíkingar voru heldur ágengari í byrjun, en það voru Akureyringar sem opnuðu markareikninginn. Sókndjarfi varnarmaðurinn Arnar Kristjánsson kom SA í forystu með glæsilegu skoti utan af vinstri kantinum eftir sendingu frá Heiðari Gauta Jóhannssyni. Skömmu áður höfðu SR-ingar fengið víti eftir að brotið var á Kára Arnarssyni þegar hann komst einn inn fyrir eftir frábæra sendingu fram miðjuna. Róbert Steingrímsson lét sér fátt um finnast og varði vítið sem Kári tók sjálfur. Mark Arnars reyndist eina mark fyrstu lotunnar. 

Markaveisla í annarri lotu

Annar leikhluti var rétt byrjaður þegar SR-ingar jöfnuðu í 1-1. Kári Arnarson var þá með pökkinn inni í sóknarsvæðinu, féll við og missti pökkinn en fékk hann aftur og skaut strax á markið og skoraði. Markið kom eftir aðeins 11 sekúndna leik.

Það leið þó ekki á löngu þar til Akureyringar náðu aftur forystunni. Þeir nýttu sér þá yfirtöluna þegar SR-ingur var sendur í refsiboxið, einmitt títtnefndur Kári, spiluðu sín á milli fyrir utan þar til pökkurinn barst yfir til vinstri á Robbe Delport sem skoraði af stuttu færi, 2-1 fyrir SA.

Forystusæla Akrueyringa varði ekki lengi því aðeins 25 sekúndum eftir uppkastið höfðu SR-ingar jafnað að nýju. Jóhann markvörður átti þá sendingu fram miðjuna og eftir smá óheppni í vörn SA átti Kári Arnarsson skot sem Róbert varði, en Ævar Arngrímsson var mættur vinstra megin og skoraði, staðan orðin 2-2. SR-ingar náðu forystu stuttu seinna þegar Alex Máni Sveinsson skoraði með skoti fyrir utan. Liðin spiluðu þá fjórir á fjóra þar sem bæði lið áttu mann í refsiboxinu, 3-2 fyrir SR.

Mörkunum hélt áfram að rigna og forysta SR-inga varði ekki nema í tæpar þrjár mínútur. Þá voru Akureyringar einum fleiri og Hafþór Andri Sigrúnarson skoraði þriðja mark þeirra og jafnaði í 3-3. SR-ingar náðu aftur forystunni á lokamínútu annarrar lotunnar. Þeir voru þá einum færri á svellinu, en leikmönnum SA tókst ekki að nýta sér liðsmuninn heldur voru það SR-ingar sem komust í snögga sókn, Alex Máni lék á Róbert í markinu og skoraði sitt annað mark og fjórða mark SR, 4-3 fyrir síðustu lotuna.

Baráttan tók við af markaregninu

Fyrri hluti þriðju lotunnar einkenndist af mikilli baráttu, en mörkin létu bíða eftir sér. Þegar lotan var rétt rúmlega hálfnuð misstu SR-ingar mann í refsiboxið fyrir brot, og annan með fyrir að mótmæla dómi. Þá leið ekki á löngu þar til Akureyringar náðu að jafna. Það tók leikmenn SA ekki nema 25 sekúndur að ná inn markinu tveimur fleiri. Unnar Hafberg Rúnarsson átti þá skemmtilega sendingu aftur fyrir sig fyrir aftan markið á Robbe Delport sem skoraði sitt annað mark og jafnaði leikinn í 4-4.

Akureyringar léku síðan áfram einum fleiri því við markið lauk aðeins refsingu annars SR-ingsins. Litlu munaði að SR-ingum tækist aftur að skora í undirtölu, komust þá í skyndisókn þegar þeir voru enn einum færri, en Róbert markvörður skautaði út úr markinu og bjargaði á síðustu stundu. SA tókst ekki að koma inn öðru marki á meðan þeir voru í yfirtölu.

Æsipsennandi lokamínúta

Akureyringar þurftu að ná inn einu marki enn því með einu stigi myndi SR fara í 35 stig og vinna deildina, jafnvel þótt SA næði að vinna í framlengingu. Síðasta mínútan varð æsispennandi því þegar um 55 sekúndur voru eftir fengu SR-ingar tvöfalda refsingu og spiluðu því tveimur færri, í það minnsta þar til og ef SA næði að skora.

Akureyringar tóku Róbert markvörð út af og spiluðu með sex útispilara á móti þremur útileikmönnum SR, en marktilraunir þeirra báru ekki árangur. Sjö sekúndur eftir á klukkunni, leikurinn stöðvaður, SA náði skoti, tíminn stöðvaður aftur þegar 5,8 sekúndur voru eftir, en SA náði ekki að skora og leiktíminn rann út. Lokatölur eftir venjulegan leiktíma 4-4 og það dugði SR-ingum til að vinna deildarmeistaratitilinn.

Framlengingin var þó að sjálfsögðu spiluð, en þrátt fyrir áframhaldandi liðsmun tókst SA ekki að skora. Framlengingin rann sitt skeið og enn var jafnt og þá var komið að vítakeppni. Þar var það bara Jóhann Már Leifsson sem skoraði fyrir SA, en Ævar Arngrímsson, Alex Máni Sveinsson og Þorgils Eggertsson skoruðu fyrir SR. 

Þorgils Eggertsson tryggði SR sigur og aukastigið í vítakeppni liðanna, tók þá þrumuskot í stað þess að reyna að leika á Róbert Steingrímsson í markinu. Pökkurinn söng í netinu og lokatölurnar 7-5 eftir að SR nýtti þrjú víti en SA eitt. Skjáskot úr útsendingu á Icehockeyicelandtv.is.

SR - SA 5-4 (0-1, 4-2, 0-1, 0-0, 1-0)

SR

Mörk/stoðsendingar: Alex Máni Sveinsson 2/0, Kári Arnarsson 1/2, Ævar Arngrímsson 1/0, Styrmir Maack 0/2, Eduard Kascak 0/1, Þorgils Eggertsson 0/1.
Varin skot: Jóhann Björgvin Ragnarsson 20 af 24 (83,33%).
Refsingar: 18 mínútur.

SA

Mörk/stoðsendingar: Robbe Delport 2/0, Arnar Kristjánsson 1/0, Hafþór Andri Sigrúnarson 1/0, Ormur Jónsson 0/2, Heiðar Gauti Jóhannsson 0/1, Ingvar Þór Jónsson 0/1, Unnar Hafberg Rúnarsson 0/1.
Varin skot: Róbert Steingrímsson 33 af 38 (86,84%).
Refsingar: 4 mínútur. 

Leikskýrslan

Lokastaðan í deildinni

SR endar með 36 stig í efsta sæti Toppdeildarinnar og tryggir sér deildarmeistaratitilinn, en SA Víkingar enda í 2. sætinu með 33 stig. Fyrir löngu varð ljóst að þessi lið myndu mætast í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn og nú er ljóst að SR hefur tryggt sér oddaleiksréttinn í einvíginu. Vinna þarf þrjá leiki til að vinna Íslandsmeistaratitilinn.

Leikdagar í úrslitaeinvíginu:

  • Skautahöllin í Laugardal þriðjudaginn 10. mars
  • Skautahöllin á Akureyri fimmtudaginn 12. mars
  • Skautahöllin í Laugardal laugardaginn 14. mars
  • Skautahöllin á Akureyri þriðjudaginn 17. mars (ef þarf)
  • Skautahöllin í Reykjavík fimmtudaginn 19. mars (ef þarf)