Fara í efni
Baldvin Þór Magnússon

Torsóttur sigur SA – Guðrún Ásta með tvö

Guðrún Ásta Valentine skoraði tvö mörk í dag. Hér er hún í sínum fyrsta meistaraflokksleik þar sem hún skoraði sitt fyrsta mark í leik gegn Fjölni fyrir rétt rúmu ári. Mynd: Rakel Hinriksdóttir.

Kvennalið Skautafélags Akureyrar í íshokkí vann seinni leik sinn á Ofurhelgi ÍHÍ í dag, laugardag. SA mætti liði Fjölnis í Egilshöllinni og vann 3-2 eftir að hafa lent 0-2 undir um miðja aðra lotuna. Fjórtán ára Akureyringur, Guðrún Ásta Valentine, skoraði tvö mörk fyrir SA.

Eva Hlynsdóttir náði forystunni fyrir Fjölni seint í fyrstu lotunni og Flosrún Vaka Jóhannesdóttir kom Fjölni í 2-0 um miðja aðra lotuna. Nokkrum mínútum síðar minnkaði hin kornunga Guðrún Ásta Valentine, fædd 2012, muninn í 2-1. Hún var aftur á ferðinni um miðja þriðju lotuna og jafnaði þá í 2-2. Það var svo Herborg Rut Geirsdóttir sem skoraði þriðja mark SA þegar tæpar þrjár mínútur voru til leiksloka eftir vandræðagang leikmanna Fjölnis upp við eigið mark. 

Sigurinn var torsóttur, en hafðist þó að lokum. SA-konur voru þó mun aðgangsharðari en heimakonur í Fjölni, áttu til dæmis 37 skot á mark á móti 15 skotum Fjölnis. 

Fjölnir - SA 2-3 (1-0, 1-1, 0-2)

Helstu tölur hjá liðunum:

Fjölnir

Mörk/stoðsendingar. Flosrún Vaka Jóhannesdóttir 1/1, Eva Hlynsdóttir 1/0, Steinunn Sigurgeirsdóttir 0/1, Elísa Sigfinnsdóttir 0/1, Laura-Ann Murphy 0/1.
Varin skot: Karítas Halldórsdóttir 34 af 37 (91,89%).
Refsingar: 6 mínútur.

SA 

Mörk/stoðsendingar: Guðrún Ásta Valentine 2/0, Herborg Rut Geirsdóttir 1/1, Sólrún Assa Arnardóttir 0/2, Lara Jóhannsdóttir 0/1, Eyrún Garðarsdóttir 0/1, Aníta Benjamínsdóttir 0/1.
Varin skot: Shawlee Gaudreault 13 af 15 (86,67%).
Refsingar: 6 mínútur.

Atvikalýsing.

Staðan í deildinni

Lið SA er með 39 stig að loknum 15 leikjum og á aðeins eftir einn leik í deildinni, heimaleik gegn SR 8. mars. SR er í 2. sætinu með 20 stig, en Fjölnir er í botnsætinu. SA og SR mætast í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn sem hefst 21. mars.