Fara í efni
Baldvin Þór Magnússon

Sandra María Jessen 10 ára markaskorari

Mynd: Skapti Hallgrímsson

GAMLA ÍÞRÓTTAMYNDIN – 94

Sandra María Jessen, landsliðskona í knattspyrnu og fyrirliði Þórs/KA, gekk í vikunni til liðs við þýska fyrstu deildar félagið 1. FC Köln eins og akureyri.net greindi frá í gær, föstudag. Sandra var ekki há í loftinu þegar mörgum varð ljóst hve hæfileikarík hún var á knattspyrnuferlinum, hún var lykilmaður í öllum yngri flokkum Þórs og varð fastamaður í meistaraflokksliði Þórs/KA 16 ára.

  • Á meðfylgjandi mynd fagnar Sandra María marki sem hún skoraði á Króksmótinu á Sauðárkróki sumarið 2005. Þarna var hún 10 ára og lék með 5. flokki Þórs.

Fréttir akureyri.net um vistaskipti Söndru Maríu frá Þór/KA til 1. FC Köln í Þýskalandi:

Sandra semur við 1. FC Köln í Þýskalandi

Spennt og mjög stolt að fá þetta tækifæri

Sandra María á að baki alls 267 skráða leiki með meistaraflokki Þórs/KA skv. vef KSÍ. Hér eru nokkur dæmi um tölfræði á ferli hennar:

  • Íslandsmót: 190 leikir121 mark
  • Bikarkeppni: 24 leikir15 mörk
  • Evrópukeppni: 8 leikir1 mark
  • A-landslið: 57 leikir - 7 mörk

Tölfræði Söndru Maríu á vef KSÍ