Fara í efni
Baldvin Þór Magnússon

Get ekki beðið eftir úrslitahlaupinu

„Ég get ekki beðið eftir því að hlaupa og eltast við heimsmeistaratitil,“ segir Baldvin Þór Magnússon í viðtali við Vísi en hann náði frábærum árangri á sínu fyrsta heimsmeistaramóti í gær, þegar hann hljóp sig inn í úrslit í 3.000 metra hlaupi.

„Þetta var markmiðið þegar ég kom hingað og það er bara geðveikt að hafa náð því. Það verður frábært að taka þátt í hlaupi sem endar með því að einhver verður heimsmeistari. Ég er ekkert smá spenntur. Ég geri mitt besta og svo sjáum við til hvað það felur í sér,“ segir Baldvin í viðtalinu.

Smellið hér til að lesa frétt Vísis.