Fara í efni
Baldvin Þór Magnússon

Baldvin keppir ekki á HM vegna meiðsla

Baldvin Þór Magnússon á Evrópumótinu í Birmingham í ágúst þar sem varð í 13. sæti og setti Íslandsmet í 10.000 metra. Mynd: FRÍ/Marta Siljudóttir

Hlauparinn Baldvin Þór Magnússon úr UFA mun ekki keppa á heimsmeistaramótinu í götuhlaupum í Kaupmannahöfn um næstu helgi vegna meiðsla á hásin. Hann átti að taka þátt í 5.000 metra hlaupi á mótinu sem fram fer 19. og 20. september. Þetta kemur fram í frétt á RUV.

Meiðslin komu fyrst upp í byrjun júlí, viku áður en Baldvin keppti í 5.000 metra hlaupi í Dublin, sem hann náði ekki að klára. Þau höfðu einnig áhrif á undirbúning hans fyrir Evrópumótið í Birmingham í ágúst. Þar tókst honum engu að síður að ná góðum árangri og setja Íslandsmet í 10.000 metra hlaupi, þar sem hann varð í 13. sæti.

Baldvin segir í samtali við RUV að hann hafi þurft að fara varlega í æfingum síðustu vikurnar fyrir EM vegna hásinarinnar. Eftir mótið reyndi hann að hlaupa aftur en fljótlega varð ljóst að meiðslin væru ekki að ganga til baka ef hann héldi áfram af fullum krafti. Því var ákveðið að hann tæki ekki þátt á HM og hann sagði að sú ákvörðun hafi ekki verið erfið. „Nei, ég held að ákvörðunin hafi ekki verið erfið. Þetta er búið að vera svo lengi á leiðinni. Sérstaklega þegar þetta er búið að vera að bögga mig í svona margar vikur. Þá var maður alveg kominn með nóg af því að slást í gegnum þetta. Þannig að ég er nógu skynsamur og veit að þetta er eina leiðin til að koma þessu í lag,“ sagði Baldvin í viðtalinu hjá RUV.

Ólympíuleikarnir 2028 langtímamarkmiðið

Næsta verkefni er að ná sér að fullu og hefja æfingar á ný. Baldvin segir að hann hafi nýlega tekið fyrsta hlaupið eftir meiðslin en vilji ekki setja sér tímapressu varðandi næstu keppnir. Hann ætlar að leyfa endurhæfingunni að hafa sinn gang og byggja sig smám saman upp aftur.

Langtímamarkmið Baldvins eru Ólympíuleikarnir í Los Angeles árið 2028. Hann segir jafnframt að síðustu tvö ár hafi verið nokkuð óstöðug vegna meiðsla og vill fyrst og fremst ná meiri samfellu í æfingum og keppni.

Baldvin er enn að íhuga hvort hann ætli að færa sig yfir í götuhlaup eða halda sig við 5.000 metra hlaup á braut. Hingað til hefur hann aðallega einbeitt sér að keppnishlaupum á braut og eins og staðan sé í dag segir hann líklegast að hann haldi áfram með 5.000 metrana. Til að tryggja sér sæti á Ólympíuleikunum þarf hann að vera meðal 42 efstu á heimslistanum.