Baldvin Þór Magnússon
														
Fimm viðurkenningar FRÍ til Akureyrar
											
									
		10.12.2021 kl. 11:20
		
							
				
			
			
		
											 
											Þorbergur Ingi Jónsson, Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir, Baldvin Þór Magnússon, Glódís Edda Þuriðardóttir og Anna Sofia Rappich.
									Fimm Akureyringar fengu viðurkenningu á uppskeruhátíð Frjálsíþróttasambands Íslands fyrir 2021 sem fram fór rafrænt í vikunni. Fimmmenningarnir eru:
Millivegalengdahlaupari ársins í karlaflokki – Baldvin Þór Magnússon, Ungmennafélagi Akureyrar, UFA
Óvæntasta afrekið – Baldvin Þór Magnússon, UFA
Utanvegahlaupari ársins í karlaflokkið – Þorbergur Ingi Jónsson, UFA
Langhlaupari ársins í kvennaflokki – Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir, UFA
Óvæntasta afrek 19 ára og yngri – Glódís Edda Þuriðardóttir, Kraftlyftingafélagi Akureyrar, KFA
Besta afrek öldunga í kvennaflokki – Anna Sofia Rappich, UFA
Smellið hér til að sjá lista yfir alla sem fengu viðurkenningu að þessu sinni.
 
                             
                             
                             
                             
                             
                             
                             
                            