Alfreð Gíslason
Norski framherjinn Haugland til Þórs
27.03.2026 kl. 12:05
Knattspyrnudeild Þórs hefur samið við norska framherjann Sebastian Haugland og skrifar hann undir þriggja ára samning við Þór. Haugland er 29 ára gamall og hefur allan sinn feril leikið í heimalandinu.
Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu Þórs í dag.
„Haugland kemur til Þórs frá norska B-deildarliðinu Hodd þar sem hann var markahæsti leikmaður félagsins á síðustu leiktíð þegar Haugland skoraði átta mörk í sautján leikjum. 2024 skoraði Haugland átta mörk í fjórtán leikjum í sömu deild en þá fyrir Asane,“ segir í tilkynningu.
Þórsarar leika sem kunnugt er í efstu deild Íslandsmótsins í sumar eftir 12 ara fjarveru. Töluverðar breytingar verða á leikmannahópnum frá því fyrra eins og sjá mér:
Komnir
- Ágúst Eðvald Hlynsson frá Vestra
- Atli Sigurjónsson frá KR
- Bjarni Guðjón Brynjólfsson frá FH að láni
- Kristófer Máni Sigurðsson frá Hetti
- Elvar Baldvinsson frá Völsungi
- Birgir Ómar Hlynsson frá ÍBV (var lánaður þangað í fyrrasumar)
- Isaac Antanga frá Svíþjóð
- Sebastian Haugland frá Noregi
Farnir
- Ibrahima Balde í Vestra
- Orri Sigurjónsson hættur
- Clement Bayiha til Kanada
- Rafael Victor í Grindavík
- Juan Guardia í Völsung
- Dagbjartur Búi Davíðsson í KA (sneri til baka úr láni)