Sigur og tap hjá körfuboltaliðum Þórs
Kvennalið Þórs í körfubolta vann auðveldan sigur á Vestra í næstsíðasta leik sínum í 1. deildinni í gær. Munurinn að lokum 56 stig, 110-54.
Það varð fljótt ljóst í hvað stefndi enda mátti búast við öruggum sigri Þórs gegn liði Vestra sem situr í neðsta sæti deildarinnar án sigurs í vetur. Þær ísfirsku voru að auki fámennar, með aðeins einn varamann á bekknum. Þór skoraði átta fyrstu stig leiksins, leiddi með tíu stigum eftir fyrsta leikhlutann og 27 stigum eftir fyrri hálfleikinn. Munurinn jókst svo jafnt og þétt allt til enda og varð að lokum 56 stig.
Þór - Vestri (22-12) (32-15) 54-27 (29-10) (27-17) 110-54
Chloe Wilson og Yvette Adriaans náðu báðar tvöfaldri tvennu, Chloe stigahæst með 21 stig og 15 fráköst og Yvette með 19 stig og 13 fráköst. Hjá Vestra var það Maria Magdalena Kolyandrova sem var atkvæðamest með 20 stig.
Helstu tölur leikmanna Þórs, stig/fráköst/stoðsendingar:
- Chloe Wilson 21/15/4 - 34 framlagspunktar
- Emma Karólína Snæbjarnardóttir 19/7/7
- Yvette Adriaans 17/13/6
- Hjörtfríður Óðinsdóttir 17/2/2
- Emilie Ravn 10/7/5
- Karen Lind Helgadóttir 9/4/4
- Sigurlaug Eva Jónasdóttir 9/1/2
- María Sól Helgadóttir 8/0/2
Þór á eftir einn leik, heima gegn Snæfelli á þriðjudagskvöld. Liðið er núna í 3. sætinu með 14 sigra, en Fjölnir er í 2. sætinu með 15 sigra og hefur lokið sínum leikjum. Nái Þór sigri gegn Snæfelli fer liðið upp fyrir Fjölni vegna betri árangurs í innbyrðis viðureignum liðanna í deildinni.
Fámennir Þórsarar töpuðu á Selfossi
Leikur Selfoss og Þórs í 1. deild karla í körfubolta komst loks af stað í þriðju tilraun í gærkvöld eftir að honum hafði verið frestað í tvígang. Selfyssingar reyndust sterkari gegn fáliðuðum Þórsurum sem mættu með tvo varamenn í leikinn, raunar aðeins einn þegar litið er á spilaðar mínútur, á meðan aðrir sátu heima, væntanlega vegna meiðsla.
Selfyssingar höfðu yfirhöndina allan leikinn, leiddu með átta stigum eftir fyrsta leikhlutann og 18 stigum eftir fyrri hálfleikinn. Munurinn á endanum 35 stig, 121-86.
Selfoss - Þór (32-24) (31-21) 63-45 (27-13) (31-28) 121-86
Eiríkur Frímann Jónsson skoraði flest stig Þórssara, 24, Týr Óskar Pratiksson kom næstur með 23. Christian Caldwell skilaði enn einni tvöföldu tvennunni, en þó mun færri stigum en venjulega. Hann skoraði 14 stig og tók 17 fráköst. Finnbogi Páll Benónýsson náði einnig tvöfaldri tvennu, skoraði 14 stig og tók 12 fráköst, auk þess að vera með flesta framlagspunkta í Þórsliðinu. Birkir Máni Sigurðarson skoraði 26 stig fyrir Selfyssinga, en spilaði þó aðeins tæpar 19 mínútur.
Helstu tölur hjá Þórsliðinu, stig/fráköst/stoðsendingar:
- Eiríkur Frímann Jónsson 24/2/4
- Týr Óskar Pratiksson 23/1/1
- Christian Caldwell 14/17/3
- Finnbogi Páll Benónýsson 14/12/3 - 24 framlagspunktar
- Arngrímur Friðrik Alfreðsson 9/0/4
- Axel Arnarsson 2/2/1
Þór endar í 10. sæti deildarinnar. Liðið vann fjóra leiki og tapaði 18. Fylkir og Hamar unnu einnig fjóra leiki, en Hamar fellur í 2. deild vegna slakasta árangurs í innbyrðis viðureignum þessara þriggja liða.
Christian Caldwell skoraði mest Þórsara í vetur, var með 23,5 stig að meðaltali í leik og tók auk þess flest fráköst, 10,2 að meðaltali í leik. Smári Jónsson átti flestar stoðsendingar að meðaltali í liðinu, 3,3 í leik.