Fara í efni
Akureyrarvaka

Seiglusigur Þórs á B-liði Keflvíkinga

Emma Karólína Snæbjarnardóttir sækir að körfu Keflvíkinga. Til varnar eru Rut Páldís Eiðsdóttir (10) og Oddný Hulda Einarsdóttir (12), en þær fóru báðar af velli með fimm villur á lokamínútunum. Mynd: Guðjón Andri Gylfason.

Kvennalið Þórs í körfuknattleik vann nauman seiglusigur á B-liði Keflvíkinga í næstefstu deild kvenna, Bæjarins beztu deildinni, í gærkvöld. Lokatölur urðu 82-75 og fimmti sigur Þórs í sex leikjum í höfn. Villuvandræði Keflvíkinga ásamt seiglu og baráttu Þórsliðsins réðu úrslitum á lokakaflanum.

Leikurinn var jafn og spennandi, en þó með nokkrum sveiflum. Þórsliðið hafði frumkvæðið að mestu í fyrri hálfleiknum, en gestirnir komust yfir um stund um miðjan annan leikhluta. Munurinn var sjö stig að loknum fyrri hálfleiknum, 42-35.

Stærsta sveifla leiksins kom í upphafi seinni hálfleiks, sjö stiga forysta Þórs breyttist í sjö stiga forystu Keflvíkinga, en Þórsliðið náði þó að jafna aftur fyrir lokafjórðunginn. Eftir hnífjafnan fjórða leikhluta seig á ógæfuhliðina hjá Keflvíkingum vegna villuvandræða. Þrjár þær stigahæstu í liðinu fóru af velli með fimm villur á síðustu tveimur mínútunum, sú fyrsta, Rut Páldís Eiðsdóttir, þegar 1:46 var eftir á klukkunni og staðan 75-73. Rut hafði þá tekið 21 frákast. Þór skoraði sjö stig gegn tveimur á þeim tíma sem eftir var.

Villufjöldi liðanna vekur athygli, Þórsliðið með 12 villur en Keflvíkingar með 25. Þriggja stiga skotin skiluðu Keflvíkingum 42 stigum, með 35% nýtingu, en Þórsliðinu aðeins níu stigum með 11 % nýtingu. 

Þór - Keflavík b (21-16) (21-19) 43-35 (20-25) (20-15) 82-75 

Emma Karólína Snæbjarnardóttir var sem fyrr öflug í liði Þórs, skoraði 35 stig og tók 11 fráköst, eins og Nile Miller sem skoraði 22 stig. Kamilla Nótt Bergsveinsdóttir skoraði 22 stig fyrir gestina og Rut Páldís Eiðsdóttir tók 21 frákast.

Þór er í 2. sæti deildarinnar með fimm sigra í fyrstu sex leikjunum, jafn marga og Selfyssingar sem eru í 2. sætinu, en Þór Þorlákshöfn er í efsta sætinu með sex sigra í sjö leikjum. 

Helstu tölur, stig/fráköst/stoðsendingar:

Þór

Emma Karólína Snæbjarnardóttir 35/11/5, Nile Miller 22/11/0, Natalía Mist Þráinsdóttir Norðdahl 7/6/1, María Sól Helgadóttir 7/4/0, Karen Lind Helgadóttir 6/4/3, Sigurlaug Eva Jónasdóttir 3/3/3, Kristný Halla Bragadóttir 2/3/0. Vaka Bergrún Jónsdóttir komst ekki á blað.

Keflavík b

Kamilla Nótt Bergsveinsdóttir 22/7/2, Lísbet Lóa Sigfúsdóttir 13/3/4, Oddný Hulda Einarsdóttir 12/7/4, Rut Páldís Eiðsdóttir 11/21/3, Telma Lind Hákonardóttir 6/4/2, Alexandra Rut Raysdóttir 5/2/0, Heiðrún Lind Sævarsdóttir 3/3/1, Alda Ögmundsdóttir 3/1/0, Sara Bergmann Tryggvadóttir 0/1/0. Guðmunda Júlía Eggersdóttir, Júlía Dís Halldórsdóttir og Erna Ósk Leifsdóttir komust ekki á blað.

Leikskýrslan og tölfræði

Staðan í deildinni

Næst:

  • Íþróttahöllin á Akureyri
    Laugardagur 21. nóvember kl. 18
    Þór - Selfoss